Breyta litnum á fangabúningum vegna vinsælla þátta Atli Ísleifsson skrifar 23. júlí 2014 11:15 Fangarnir í Saginaw-sýslu eru margir mjög ósáttir með að þurfa að klæðast röndóttum, svörtum og hvítum fangabúningum. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Lögreglustjóri í Michigan-ríki í Bandaríkjunum hefur fyrirskipað að allir fangar í Saginaw-sýslu skuli aftur klæðast röndóttum, svörtum og hvítum fangabúningum. Ástæðuna segir hann vera þá að appelsínugulu búningarnir þykja nú orðið of svalir. William Federspiel lögreglustjóri segir að appelsínugulu búningarnir hafi tekið á sig nýja merkingu með þáttaröðinni „Orange is the New Black“ sem Netflix framleiðir. Hafi hann því leitað innblásturs aftur til nítjándu aldarinnar þar sem fangar voru gjarnan látnir klæðast röndóttum, svörtum og hvítum búningum. Federspiel segir í samtali við Reuters að ákvörðunin um að skipta út appelsínugulu búningunum hafi verið tekin eftir að lögmaður klæddist appelsínugulum fatnaði í réttarhöldum. „Þegar mörkin milli menningar utan veggja fangelsa og menningar innan veggja þeirra eru orðin óljós, verð ég að gera eitthvað til að endurskilgreina þau mörk.“ Federspiel segist ekki eiga von á að fyrirhugaðar breytingar verði að fullu gengar í gegn fyrr en um áramót, en að fjöldi fanga hafi nú þegar lýst yfir óánægju sinni. „Þetta var auðveld ákvörðun fyrir mig. Þetta rýfur fangabúningana burt frá því sem telst svalt í menningu okkar. Það er ekki svalt að vera fangi í fangelsinu í Saginaw-sýslu.“ Þættirnir „Orange is the New Black“ eru á dagskrá Stöðvar 2 á þriðjudagskvöldum klukkan 21.30.
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Fleiri fréttir Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Sjá meira