Hvítum fána flaggað á Brooklyn-brúnni Atli Ísleifsson skrifar 23. júlí 2014 14:01 Þessi sjón blasti við New York-búum sem litu á Brooklyn-brúna í gærmorgun. Vísir/AFP
Lögregla í New York þurfti að sinna heldur óvenjulegu útkalli í gærmorgun þegar tilkynning barst um að hvítum fána væri flaggað á Brooklyn-brúnni. Vanalega eru tveir bandarískir fánar við hún á brúnni sem tengir Brooklyn-hverfi og Manhattan. Í fyrrinótt hafði hins vegar einhver komið upp hvítþveginni útgáfu af bandaríska fánanum þar sem enn sást í stjörnur og rendur bandaríska fánans. „Þetta er merkilegt. Það er fáránlegt að einhver hafi getað farið þangað upp án þess að nokkur hafi orðið þess var,“ sagði sjónarvottur í samtali við CBS New York. Á myndbandsupptökum sést hvernig fámennur hópur manna fer yfir brúna um klukkan þrjú í fyrrinótt. Á sama tíma er slökkt á ljósunum sem vanalega lýsa upp brúna. „Það er heppni að þeir komu bara upp fána en ekki sprengju,“ hefur New York Post eftir heimildarmanni sínum innan lögreglunnar. „Það hefði verið skelfilegt. Hver veit hvaða skaða þeir hefðu getað valdið. Þetta mál er allt hið vandræðalegasta.“ Lögregla í New York segist líta málið alvarlegum augum. Ekki er ljóst um hvað vakti fyrir mönnunum en sumir telja að um listrænan gjörning hafi verið að ræða. Um 120 þúsund bílar fara yfir brúna á hverjum degi, auk fjögur þúsund hjólareiðamanna og þrjú þúsund gangandi vegfarenda.
Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Innlent Fleiri fréttir Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Sjá meira