Spilaði Whigfield til að losna við Róma-fólk Atli Ísleifsson skrifar 17. júlí 2014 11:01 Plötusnúðurinn spilaði háværa tónlist frá níu um morguninn til hádegis. Vísir/AFP
Borgarstjóri Landen í Belgíu fékk fyrr í vikunni plötusnúð til að spila háværa tónlist svo að Róma-fólk myndi yfirgefa lóð í borginni þar sem það hafði gert sig heimakomið. Róma-fólkið kom til Landen, sem er um fimmtíu kílómetrum austur af Brussel, á sunnudaginn og átti það upphaflega að yfirgefa staðinn á þriðjudaginn að sögn borgarstjórans Gino Debroux. „Þeir hafa neitað því og eru þarna með þrjátíu húsvagna. Þetta er iðnaðarhverfi, ekki tjaldsvæði,“ sagði Debroux í samtali við Reuters. Í tilraun til að fá eigendur húsvagnanna á brott réð borgarstjórinn plötusnúð til starfa og fyrirskipaði honum að spila tónlist á 95 desibela styrk, en það jafnast á við að hlusta á loftbor í um fimmtán metra fjarlægð. „Þetta er leið til að þrýsta á þá. Þetta er leið til að ná samkomulagi sem felur ekki í sér ofbeldi,“ sagði borgarstjórinn. Tónlistin var spiluð frá klukkan níu að morgni og til hádegis. Byrjaði hann á því að spila lagið „Sultans of Swing“ með Dire Straits, en á myndbandi frá vettvangi má heyra að Róma-fólkið hafi einnig þurft að hlýða á lagið „Saturday Night“ með dönsku söngkonunni Whigfield. Einn húsvagnseiganda sagðist þó vilja þakka borgarstjóranum. „Það var vinalegt af honum að senda plötusnúð á staðinn svo við gætum haldið veislu.“ Róma-fólkið og borgarstjórinn hafa nú náð samkomulagi um að það yfirgefi lóðina síðar í dag. Ákvörðun borgarstjórans hefur vakið mikið umtal í Belgíu og hafa margir lýst yfir óánægju sinni, þar með taldir samflokksmenn hans í Socialistische Partij Anders.
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Sjá meira