Erlent

Lýsa yfir áhyggjum vegna hugsanlegs mengunarslyss

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/afp
Umhverfisverndarsamtök í Ítalíu hafa lýst yfir áhyggjum vegna hugsanlegs megnunarslyss sem ítalska skemmtiferðarskipið Costa Concordia gæti valdið. Verið er að flytja skipið um þrjú hundruð kílómetra leið að Genúa, þar sem það verður rifið niður í brotajárn.  Eigendur skipsins segja þó að ekki séu miklar líkur á að skipið valdi nokkru mengunarslysi. 

Flutningur skipsins kemur til með að taka fjóra daga. Tíu skip verða með í för til að fylgjast með gangi mála, hreinsa upp eiturefni og annað sem gæti fallið til en talið er að rúmlega 260 lítrar af menguðu vatni séu í skipinu núna.

Skemmtiferðaskipinu Costa Concordia var komið á flot á ný eftir að hafa legið á strandstað í tvö og hálft ár. Þessar framkvæmdir eru með þeim umfangsmestu og flóknustu sinnar tegundar og fylgdi þeim mikil spenna. Lofti var dælt í þrjátíu stór hylki sem fest voru á skipsskrokkinn. Sjó var dælt út og skipinu lyft um tólf metra af sjávarbotni.

Skipið er gríðar stórt - um 114 þúsund tonn og 290 metrar að lengd. Náttúran á strandstað er afar viðkvæm og lífríki fjölbreytt og kom því aldrei til greina að sprengja eða rífa skipið á strandstað, svæðið er friðlýst og hefði það valdið of miklu tjóni. Kostnaður við verkefnið er þegar kominn upp í milljarð evra – en heildarkostnaður er talinn verða um 1,5 milljarður evra.

Rúmlega fjögur þúsund og tvö hundruð manns, af sextíu þjóðernum, voru um borð í skipinu þegar það steytti á skeri undan ströndum eyjunnar Giglio þann þrettánda janúar 2012. Alls létust þrjátíu og tveir. Skipstjórinn og fimm aðrir úr áhöfninni voru sakfelldir fyrir manndráp vegna málsins.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×