Erlent

Slökkviliðsmenn yfirgáfu eldsvoða í tvo tíma

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Slökkviliðismenn í London yfirgáfu eldsvoða í austurhluta borgarinnar vegna vinnustöðvunar, en eldur kviknaði í um fjögur hundruð tonnum af endurvinnanlegu rusli í nótt. Sjötíu slökkviliðsmenn voru sendir á vettvang.

Fyrst gengu þeir úr skugga um að engum stafaði ógn af eldinum og síðan fóru þeir af vettvangi.

Starfsmenn Securitas börðust við eldinn í þeirra stað, samkvæmt frétt á vef Guardian.

Tveimur tímum seinna, þegar vinnustöðvuninni lauk, voru 30 slökkviliðsmenn sendir aftur að brunanum og tók rúman klukkutíma að ráða niðurlögum brunans.

Um er að ræða þriðju vinnustöðvun slökkviliðsmanna í Londuon vegna breytinga sem gerðar voru á ellilífeyrisreglum þeirra. Þeir halda því fram að vegna breytinganna þurfi slökkviliðsmenn að leggja meira af mörkum, vinna lengur en fá minni lífeyri.

Slökkviliðsmenn í London ætla sér að stöðva vinnu fimmtán sinnum í vikunni um stutt skeið að hverju sinni. Það sé gert til að sýna fram á samheldni, án þess að koma brunavörnum í London í uppnám.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×