Gætu hafið ofsóknir á hendur blaðamönnum og bloggurum Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. júlí 2014 23:58 David Cameron, forsætisráðherra Bretlands. Vísir/AFP
Núverandi skilgreining breskra stjórnvalda á „hryðjuverkum“ er svo víðtæk að blaðamenn og bloggarar þar í landi gætu átt á hættu að vera stimplaðir hryðuverkamenn fyrir að „birta efni sem yfirvöld telja hættulegt almenningi.“ Þetta kemur fram í máli Davids Anderson lögmanns sem hefur verið falið að endurskoða hryðjuverkalöggjöfina þar í landi. Hann segir núverandi lagabálk einhvern þann ítarlegasta sem fyrirfinnst í vestrænu ríki en hann hefur gert lögregluyfirvöldum kleift að beita sér af miklum krafti gegn hryðjuverkasamtökum á borð við Al-Qaeda, öfgahreyfingum á hægri vængnum og herskáum hópum Norður-Íra. „Ef almenningur sættir sig við þessar miklu heimildir er nauðsynlegt að þeim sé beint á réttar brautir. Ef ekki svo er ekki þá hefur einnig fjöldi frumvarpa verið lagður fram sem hefur aukið fyrirliggjandi heimildir en auðvelt ætti að vera að draga til baka án stórkoslegra afleiðinga,“ segir Anderson. Hann telur að útgáfa hverskyns efnis sem ætlað er að hafa áhrif á stjórnvöld þar í landi megi túlka samkvæmt núverandi lögum sem hættulega og til þess fallna að valda ógna öryggi og heilsu bresks almennings. Anderson segir meðal annars: „Þetta þýðir að blaðamenn og bloggarar gætu átt von á því að verða fyrir barðinu á lögreglunni ef þeir hóta eða undirbúa útgáfu á efni sem yfirvöld gætu túlkað sem ógn við almannaöryggi.“ Hann bætir við að núverandi skilgreining gæti þannig átt við um hvern þann sem mótmælir bólusetningum á þeim forsendum að þær séu skaðlegar heilsu almennings. Hann segir niðurstöður sínar þó ekki vera áfellisdóm yfir ríkisstjórninni, saksóknurum eða lögreglunni heldur ætti frekar að túlka þær sem þarfa áminningu um að víða sé pottur brotinn í löggjöfinni sem þurfi að taka til gagngerrar endurskoðunar.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Fleiri fréttir D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Sjá meira