Erlent

Ræða ágreining um Juncker

Nokkrir evrópskir þjóðarleiðtogar hittust í Svíþjóð í gær til þess að ræða deilur sínar um það, hver verði fyrir valinu sem næsti forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Það var Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, sem boðaði til fundarins og fékk þau Angelu Merkel Þýskalandskanslara, David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, og Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, í heimsókn á bústað sinn skammt frá Stokkhólmi.

Merkel hefur viljað fá Jean-Claude Juncker í embættið, en þeir Cameron og Rutte hafa ekki mátt heyra á það minnst.

Juncker, sem var lengi forsætisráðherra Lúxemborgar, var einn helsti arkitekt hinnar sameiginlegu myntar Evrópusambandins, evrunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×