ESB sýnir auðmýkt Guðsteinn Bjarnason skrifar 4. júní 2014 10:00 Yfirmaður norðurslóðastefnu Evrópusambandsins tók þátt í opnum fundi í Norræna húsinu á mánudag. fréttablaðið/GVA „
Við sýnum auðmýkt í umgengni okkar við norðurskautið,“ sagði Richard Tibbels, sviðsstjóri norðurslóðamála hjá utanríkisþjónustu Evrópusambandsins (EEAS), þegar hann gerði grein fyrir norðurslóðastefnu Evrópusambandsins á opnum fundi í Norræna húsinu á mánudag. Á ráðstefnunni kom fram að norðurslóðastefnan felst ekki síst í því að Evrópusambandið hefur komið á fót og tekur þátt í margþættum samstarfs- og samræðuvettvangi með öllum þeim ríkjum, sem eiga hagsmuna að gæta á norðurslóðum. Tibbels segir Ísland nú þegar í töluverðu samstarfi við ESB í norðurslóðamálum, og þau samskipti eigi eftir að aukast á næstu misserum. Hann segir ESB þessa dagana fylgjast með þróun mála í Rússlandi og nágrannaríkjum Rússlands, og telur fullvíst að Rússar hafi eins og önnur norðurskautsríki hag af því að friður ríki áfram á norðurslóðum, þrátt fyrir vaxandi hernaðaruppbyggingu Rússa þar. „Norðurskautið hefur áratugum saman verið friðsælt og öruggt svæði, jafnvel á meðan kalda stríðið var í hámarki,“ segir Tibbels. „Ríkin hafa jafnan getað komist að niðurstöðu í ágreiningsmálum sínum og ég tel að það sé í allra þágu að svo verði áfram.“ Hvað varðar vaxandi áhrif Kínverja víða um heim, þá segir Tibbels afar mikilvægt að þeir séu nú komnir með áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu. „Kínverjar hafa nú tækifæri til að horfast í augu við skoðanir norðurskautsríkjanna.“ Hann segir sérlega mikilvægt að Kínverjar hafi nú tækifæri til að átta sig á því „hvað þeir þurfa að gera, kjósi þeir að fylgja eftir efnahagslegum hagsmunum sínum á norðurslóðum, þannig að það gangi ekki gegn hagsmunum norðurskautsríkjanna.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Innlent Fleiri fréttir Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Sjá meira