Erlent

Flokkar komi ekki í skólana

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Sænska kennarasambandið krefst þess að heimsóknir stjórnmálaflokka í skóla verði stöðvaðar þar til lögum verði breytt.

Samkvæmt núverandi reglum geta skólastjórar ekki bannað nasistaflokki að koma í heimsókn eingöngu vegna þess að hann er andlýðræðislegur. Kennarasambandið segir lögin um skóla og reglurnar um heimsóknir flokka stangast á.

Jan Björklund menntamálaráðherra hefur lofað að skoða hvernig skólar geti takmarkað heimsóknir stjórnmálaflokka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×