Ólíklegt að dregið verði úr olíunotkun Guðsteinn Bjarnason skrifar 3. apríl 2014 07:00 Búast má við að hitabylgjur og vatnsflóð verði algengari.
Á mánudaginn, sama daginn og loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna kynnti nýjustu stöðuskýrslu sína, efndi bandaríska olíufélagið Exxon til málþings um umhverfismál. Þar kom fram að stjórnendur og sérfræðingar fyrirtækisins telji afar ólíklegt að ríki heims komi sér saman um að draga verulega úr notkun á jarðefnaeldsneytum, jafnvel þótt almennt sé orðið viðurkennt að notkun jarðefnaeldsneyta valdi loftslagsbreytingum og þeim fylgi margvísleg óæskileg áhrif. „Við erum með fullnægjandi þekkingu á því, og hún er byggð á rannsóknum og vísindum, að hættan á loftslagsbreytingum er raunveruleg og að grípa þyrfti til viðeigandi ráðstafana til að taka á þeirri hættu,“ sagði Ken Conhen, einn yfirmanna Exxon. „En þegar litið er til þess hve nauðsynleg orka er fyrir líf okkar allra, þá þurfa þessar ráðstafanir að miðast við aðrar þær staðreyndir sem við stöndum frammi fyrir, svo sem að losa stóran hluta mannkyns undan fátækt.“ Exxon, sem er eitt af stærstu olíufyrirtækjum heims, spáir því að losun koltvísýrings muni ná hámarki í kringum árið 2030 en síðan muni smám saman draga úr losuninni eftir því sem mannkynið nær betri tökum á öðrum orkugjöfum og komist af með minna af kolefni í eldsneyti. Þessi spá er á svipuðum nótum og spá loftslagsnefndarinnar. Í skýrslu loftslagsnefndarinnar segir að hvergi á jörðinni verði neinn óhultur fyrir afleiðingum hlýnunar jarðarinnar. Yfirlit yfir helstu breytingarnar, sem búast má við, er að sjá á kortinu hér að ofan. Í Evrópu má meðal annars búast við því að hitabylgjur og vatnsflóð verði algengari og erfiðari viðureignar. Þetta muni reyna verulega á grunnstoðir samfélagsins.
Mest lesið Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Innlent Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Innlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Fleiri fréttir Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Sjá meira