Starfskraftar streyma frá Austur-Evrópu Guðsteinn Bjarnason skrifar 3. febrúar 2014 07:00 Í Sofíu, höfuðborg Búlgaríu, streymir fólk upp í langferðabifreiðar og er ferðinni hér heitið til London. Nordicphotos/AFP
Frá því að Rúmenía fékk aðild að Evrópusambandinu árið 2007 hafa fimm þúsund læknar flutt þaðan. Flestir þeirra eru innan við fertugt. Alvarlegur læknaskortur er því farinn að gera vart við sig í landinu. Þetta er hin hliðin á innflytjendastraumnum frá austanverðri Evrópu, sem ráðamenn í Bretlandi og fleiri Vestur-Evrópuríkjum eru farnir að lýsa áhyggjum yfir. Innflytjendurnir, sem streyma frá hinum fátækari ríkjum Evrópusambandsins til hinna ríkari, hafa margir hverjir verið mikilvægir starfskraftar í heimalandinu. Svonefndur „spekileki“ er farinn að verða þar vaxandi vandamál og munar þar mestu um lækna, upplýsingatæknifólk og verkfræðinga. Frá þessu skýrir þýska dagblaðið Die Welt á vefsíðum sínum. „Þetta er ferli sem byrjaði strax fyrir sex eða átta árum,“ hefur Die Welt eftir Láslzló Harsányi, ungverskum skurðlækni sem er prófessor við Semmelweis-háskólann í Búdapest og yfirmaður skurðlækningadeildar háskólasjúkrahússins. Hann segir að allir læknar sem eru á miðjum aldri og sjá sér fært að flytja úr landi séu nú þegar farnir frá Ungverjalandi. Hann segir ungversk sjúkrahús farin að finna illilega fyrir þessum læknaskorti. Þá sé farið að skorta verulega menntað starfsfólk til annarra starfa á sjúkrahúsum í Ungverjalandi, svo sem hjúkrunarfræðinga og aðstoðarfólk á skurðstofum. Erfiðast sé ástandið á sjúkrahúsum úti á landi eða í úthverfum Búdapest, en skást á Semmelweis-háskólasjúkrahúsinu í Búdapest, sem telst hið besta í landinu. Sams konar ástand er að finna í flestum faggreinum hinna fátækari aðildarríkja ESB í austanverðri álfunni. Fólksflóttinn frá Rúmeníu hefur á síðustu árum verið það stórtækur að íbúafjöldinn er kominn niður fyrir 20 milljónir, en þar bjuggu áður 23 milljónir manna. „Maður væri brjálaður að gera það ekki,“ er haft eftir Ungverjanum Albert Kottner, sem hefur sérhæft sig í uppsetningu á lyftum. Fagmenn í þeirri grein eru nánast horfnir í Ungverjalandi. „Hér í Ungverjalandi þénar maður með erfiðisvinnu 500 evrur á mánuði, en í Austurríki fær maður þúsund evrur á viku.“
Mest lesið Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Fleiri fréttir Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Sjá meira