ESB undirbýr málaferli vegna sölu Möltu á ríkisborgararétti Brjánn Jónasson skrifar 23. janúar 2014 14:08 Framkvæmdastjórn ESB telur það skapa hættu fyrir önnur aðildarríki ESB selji Malta ríku fólki ríkisborgararétt. Nordicphotos/AFP
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) býr sig undir málaferli gegn stjórnvöldum á Möltu vegna ákvörðunar þeirra um að selja ríkum einstaklingum ríkisborgararétt. Malta hyggst bjóða vellauðugu fólki að kaupa ríkisborgararétt fyrir 650 þúsund evrur í reiðufé, auk 150 þúsund evra sem eyða þarf í fjárfestingu á Möltu. Þetta samsvarar samtals tæpum 126 milljónum króna. Þetta hefur lagst illa í stjórnvöld í öðrum ríkjum ESB, þar sem ríkisborgararéttur í einu ríki veitir víðtæk réttindi í öllum ríkjum sambandsins. Rök framkvæmdastjórnarinnar eru þau að með því að selja ríkisborgararétt séu þau í raun að selja réttinn til að búa í öllum aðildarríkjunum 28, að því er fram kemur á fréttavefnum EU Observer. Það skapi áhættu fyrir hin aðildarríkin ef stjórnvöld á Möltu gæti ekki nægilega að því að koma í veg fyrir að glæpamenn fái ríkisborgararétt með þessum hætti. Framkvæmdastjórnin hyggst reyna að koma í veg fyrir þetta á grundvelli greinar 4.3 í sáttmálanum um Evrópusambandið. Talið er að stjórnvöld á Möltu gætu talist brotleg við það ákvæði sem segir að ríki skuli vera einlæg í samvinnu sinni. Þetta er nokkuð önnur afstaða en framkvæmdastjórn ESB lét uppi í nóvember í fyrra. Þá taldi Framkvæmdastjórn ESB skýrt að Evrópudómstóllinn hafi ítrekað staðfest að ríki ráði því sjálf hverjum þau veiti ríkisborgararétt, og að ESB hafi engan rétt til að koma í veg fyrir að Malta selji ríkisborgararétt sinn.
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira