Fótbolti

Staðfest að Minala sé 17 ára - ekki 42 ára

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Joseph Minala er 17 ára gamall.
Joseph Minala er 17 ára gamall. Vísir/getty
Ítalska knattspyrnusambandið hefur endanlega staðfest að kamerúnski knattspyrnumaðurinn Joseph Minala er 17 ára gamall en ekki 42 ára eins og haldið hefur verið fram.

Minala leikur með yngri liðum Lazio á Ítalíu en hann var ásakaður af afrískri fótboltavefsíðu að vera að ljúga til um aldur sinn. Var hann sagður 42 ára gamall.

Þetta leiddi til rannsóknar hjá ítalska knattspyrnusambandinu sem komst á endanum að þeirri niðurstöðu að Minala er 17 ára gamall, þrátt fyrir að líta út fyrir að vera mun eldri.

„Rannsóknin leiddi í ljós að ekki þarf að beita neinum refsiaðgerðum,“ segir í yfirlýsingu sambandsins.

Minala gekk í raðir Lazio síðasta sumar og spilaði með þeim í stóru unglingamóti í febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×