Neyðarástand í Taílandi Guðsteinn Bjarnason skrifar 22. janúar 2014 11:15 Taílenskir hermenn fylgjast með mótmælendum. Vísir/AP
Taílandsstjórn lýsti seint í gærkvöld yfir neyðarástandi í landinu eftir skotárás á einn stuðningsmanna stjórnarinnar.Kwanchai Praipana, sem hafði verið í forystu meðal stuðningsmanna stjórnarinnar, varð fyrir tveimur skotum þegar vopnaðir menn óku framhjá heimili hans og skutu af byssum sínum. Kwanchai liggur nú á sjúkrahúsi. Neyðarástandið á að gilda í tvo mánuði og stjórnvöld fá nú víðtæk völd til þess að handtaka fólk, banna samkomur og ritskoða fjölmiðla. Töluverð harka hefur færst í mótmælin í landinu á síðustu dögum. Gerðar hafa verið árásir á mótmælendur, meðal annars var handsprengjum varpað á þá á föstudag og sunnudag með þeim afleiðingum að einn maður lét lífið og tugir særðust. Alls hafa þá níu manns látist og meira en 550 særst í átökum tengdum mótmælunum gegn stjórninni síðustu mánuðina. Stjórnarandstæðingar hafa frá því í nóvember krafist þess að stjórnin segi af sér. Stjórnin brást við með því að leysa upp þing og boða til kosninga 2. febrúar, en stjórnarandstæðingar láta sér það ekki nægja enda nokkuð ljóst að núverandi ríkisstjórn hefur meirihlutastuðning meðal landsmanna. Þess í stað vilja stjórnarandstæðingarnir að bráðabirgðastjórn verði falið að gera breytingar á stjórnskipan landsins áður en efnt verði til nýrra kosninga.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira