Erlent

Mannskæð flóð í Búlgaríu

Randver Kári Randversson skrifar
Mikil flóð urðu í borginni Varna í gær.
Mikil flóð urðu í borginni Varna í gær. Vísir/AP
Að minnsta kosti tíu manns eru látnir og sjö er saknað eftir að miklar rigningar og flóð í austurhluta Búlgaríu undanfarna daga. BBC greinir frá þessu.

Ástandið er sérstaklega slæmt í hafnarborginni Varna þar sem bjarga þurfti fjölda borgarbúa eftir að bílar höfðu farið á flot og hundruð eru án matar og rafmagns. Í bænum Kilifarevo björguðu slökkviliðsmenn ellefu manns sem höfðu flúið undan vatnsflaumnum með því að klifra upp á húsþak.

Um mánaðarúrkoma féll á svæðinu á einum sólarhring í gær. Búist er við áframhaldandi rigningu, með tilheyrandi flóðum í Búlgaríu næstu daga. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×