Segir Norður-Kóreu „ekki alvöru land“ Bjarki Ármannsson skrifar 12. maí 2014 14:49 Kim Jong-Un, leiðtogi Norður-Kóreu, ásamt eiginkonu sinni Ri Sol Ju á nýlegri hersýningu. Vísir/AFP
Talsmaður suður-kóreska varnarmálaráðuneytisins gagnrýnir í dag harðlega stjórnvöld í Norður-Kóreu og gengur svo langt að segja að ríkið ætti hreinlega að „gufa upp.“ Reuters fjallar um þetta mál. Þessi ummæli koma í kjölfar deilna milli nágrannaríkjanna tveggja sem stigmögnuðust í mars þegar Bandaríkin og Suður-Kórea ásökuðu einræðisríkið um að njósna um Suður-Kóreu með mannlausum dróna. Tilkynning frá norður-kóreska hernum segir þessar ásakanir uppspuna af hálfu Park Geun-hye, forseta Suður-Kóreu, og að Bandaríkin haldi þeim á lofti í blindni. Yfirvöldum í Washington var líkt við „elliæran afa“ í tilkynningunni. Kim Min-seok, talsmaður suður-kóreska varnarmálaráðuneytisins, brást við tilkynningunni með óvenju harðorðri árás á nágranna sína í norðri. „Norður-Kórea er ekki alvöru land, er það nokkuð?“ sagði Min-seok á fundi í Seoul. „Það hefur ekki mannréttindi eða frelsi. Það gegnir því eina hlutverki að halda á lofti einni manneskju. Þetta land lýgur í sífellu og notast við afturhaldssamt orðagjálfur. Þess vegna ætti það að gufa upp.“ Norður- og Suður-Kórea sömdu tæknilega séð aldrei um frið eftir stríðið þeirra á milli á árunum 1950 til 1953. Tilkynningin sem birtist í dag er sú nýjasta af mörgum sem Norður-Kórea hefur sent út sem fara ófögrum orðum um suður-kóreska forsetann.
Tengdar fréttir Viðbragðsáætlun Kínverja við hugsanlegu falli Norður-Kóreu lekið Ráðamenn í Peking taldir hafa litla trú á langlífi stjórnar Kims Jong-Un. 7. maí 2014 11:48 Norður-Kórea kallar forseta Suður-Kóreu "blaðrandi smábóndakonu" Ofsafengin yfirlýsing gerir harðyrta atlögu að Park Geun-Hye 27. mars 2014 19:30 Norður-Kórea heldur áfram tilraunastarfsemi með langdrægar eldflaugar 26. mars 2014 21:14 Norður-Kóreumenn reiðir yfir flugskeytaprófunum Hóta öllu illu fari svo að flaug lendi á norður-kóreskri grundu. 7. apríl 2014 19:06 Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Fleiri fréttir R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Sjá meira
Viðbragðsáætlun Kínverja við hugsanlegu falli Norður-Kóreu lekið Ráðamenn í Peking taldir hafa litla trú á langlífi stjórnar Kims Jong-Un. 7. maí 2014 11:48
Norður-Kórea kallar forseta Suður-Kóreu "blaðrandi smábóndakonu" Ofsafengin yfirlýsing gerir harðyrta atlögu að Park Geun-Hye 27. mars 2014 19:30
Norður-Kóreumenn reiðir yfir flugskeytaprófunum Hóta öllu illu fari svo að flaug lendi á norður-kóreskri grundu. 7. apríl 2014 19:06