Sonur Mitterrand vill inn á sænska þingið Atli Ísleifsson skrifar 8. ágúst 2014 14:15 François Mitterrand gegndi embætti Frakklandsforseta á árunum 1981 til 1995 og lést 1996. Vísir/AFP
Sonur François Mitterrand, fyrrum Frakklandsforseta, er nú í framboði fyrir sænska hægriflokkinn Moderaterna en þingkosningar fara fram í Svíþjóð þann 14. september næstkomandi. Hravn Forsne er í fimmta sæti á lista Moderaterna í Kungsbacka og er möguleiki að hann verði kosinn inn á þing í haust. Hinn 25 ára Forsne segist í samtali við Kungsbacka-Nytt þó vilja verða þekktur vegna eigin verðleika, en ekki föður síns. Forsne staðfestir nú að Mitterrand, sem var sósíalisti, sé í raun faðir hans. „Það er rétt. François Mitterrand var pabbi minn,“ segir hann í samtali við blaðið. Í frétt DN segir að móðir Forsne heiti Chris Forsne og starfi sem blaðamaður. Í viðtali við Aftonbladet fyrir tveimur árum sagði hún frá löngu sambandi sínu við Mitterrand en vildi þá ekki ræða um hver væri faðir barnsins sem hún fæddi árið 1988. Hravn Forsne segist hafa hitt föður sinn fimm eða sex sinnum á þeim árum sem móðir hans bjó í Frakklandi, en hann var sjö ára þegar Mitterrand lést úr krabbameini. Hann segir föður sinn þó ekki hafa haft áhrif á pólitískar skoðanir sínar. „Ef tengja á slíkt við fjölskylduna þá snýst það frekar um þær stjórnmálaumræður sem ég hef átt við móður mína.“
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Sjá meira