Fann dóttur sína áratug eftir flóðbylgjuna Atli Ísleifsson skrifar 8. ágúst 2014 15:20 Ranudhatul Jannah (önnur frá hægri) var fjögurra ára gömul þegar flóðbylgjan skall á heimili fjölskyldu hennar í vesturhluta Aceh. Vísir/AFP
Fjórtán ára stúlka hefur verið sameinuð fjölskyldu sinni á ný, tæpum áratug eftir að hún varð viðskila við foreldra sína í flóðbylgjunni sem reið yfir Aceh-hérað í Indónesíu á annan dag jóla 2004. Það var frændi stúlkunnar sem varð á vegi hennar fyrr í sumar, en honum þótti hún svipa til löngu horfinnar frænku sinnar sem hvarf í hamförunum tíu árum fyrr. Ranudhatul Jannah var fjögurra ára gömul þegar flóðbylgjan skall á heimili fjölskyldunnar í vesturhluta Aceh. Flóðbylgjan hrifsaði Ranudhatul og sjö ára bróður hennar í burtu með flóðbylgjunni og eftir rúma mánaðarlanga leit gáfu foreldrar hennar upp alla von um að finna börn sín á lífi. Móðir stúlkunnar segir það kraftaverki líkast að hafa fengið dóttur sína aftur í hendurnar, nú tíu árum síðar. Ranudhatul lifði flóðbylgjuna af en hrifsaðist út á afskekktar eyjar í suðvesturhluta héraðsins þar sem fiskimaður bjargaði henni. Flutti hann hana á meginlandið þar sem hún ólst upp hjá móður fiskimannsins. Í frétt Sky segir að foreldrar Ranudhatul hafi heimsótt stúlkuna í júní og komist að því að vissulega var um dóttur þeirra að ræða. „Hjarta mitt sló svo hratt þegar ég sá hana. Ég faðmaði hana og hún mig og mér leið svo vel að hafa hana aftur í örmum mér,“ sagði Jamaliah, móðir Ranudhatul. Um 170 þúsund manns fórust þegar tíu metra há flóðbylgja skall á Aceh-hérað þann 26. desember 2004. Flóðbylgjan orsakaðist af jarðskjálfta upp á 9,1 stig undan ströndum héraðsins. Að auki fórust 60 þúsund manns í öðrum héruðum Indónesíu og víðar.
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Innlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Fleiri fréttir Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Sjá meira