Erlent

Staða Jerúsalemborgar í Hæstarétti Bandaríkjanna

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Ari Zivotofsky ásamt syni sínum Menachem fyrir utan hæstarétt Bandaríkjanna árið 2011.
Ari Zivotofsky ásamt syni sínum Menachem fyrir utan hæstarétt Bandaríkjanna árið 2011. Vísir/AP
Foreldrar tólf ára drengs, sem heitir Menachem Zivotofsky, hafa allt frá fæðingu hans barist fyrir því að bandarísk stjórnvöld skrái hann fæddan í Ísrael.

Strákurinn er fæddur í Jerúsalem, en Bandaríkjastjórn hefur til þessa fylgt þeirri afstöðu, og styðst þar við alþjóðalög, að Jerúsalemborg tilheyri ekki ísraelska ríkinu, hvað þá að hún sé höfuðborg þess.

Foreldrar piltsins, sem sjálf eru fædd í Bandaríkjunum, vísa hins vegar til þess að árið 2002 samþykkti Bandaríkjaþing að taka ætti undir þá afstöðu ísraelskra stjórnvalda, að Jerúsalem væri höfuðborg ríkisins.

George W. Bush, þáverandi forseti Bandaríkjanna, staðfesti á sínum tíma lög þess efnis en tók við það tækifæri jafnframt fram að stefnu Bandaríkjanna gagnvart stöðu Jerúsalemborgar yrði ekki breytt.

Barack Obama hefur fylgt sömu stefnu og ekki viljað líta svo á að Jerúsalem sé höfuðborg Ísraels.

Mál drengsins hefur verið að flækjast fyrir bandarískum dómstólum í nærri tólf ár, og er nú í annað sinn að koma fyrir hæstarétt. Í fyrra sinnið vísaði dómstóllinn málinu frá með þeim rökum að dómstólar ættu ekki að taka afstöðu í þessari deilu milli þingsins og forsetans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×