Veittu styrk af yfir 100 þúsund ferðum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 17. október 2014 07:00 Sæmundur Sigurlaugssonsegir leigubílastöðina greiða Krabbameinsfélaginu 12 krónur af hverri pantaðri ferð. Fréttablaðið/Vilhelm
Styrkurinn sem Krabbameinsfélag Íslands fékk í fyrra frá Hreyfli vegna átaks leigubílastöðvarinnar í október og nóvember nam tæpum 1,4 milljónum króna. Upphæðin í hittifyrra var svipuð. „Fólki finnst styrkurinn af hverri ferð lítil upphæð en það gerir sér ekki grein fyrir því að ferðirnar, sem greiddur er styrkur af til Krabbameinsfélagsins, nema mörgum tugum þúsunda á mánuði. Það verður talsverður peningur þegar allar ferðirnar eru teknar saman.“ Þetta segir Sæmundur Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri Hreyfils, um umræðuna á Facebook um að 12 króna styrkur af hverri pantaðri ferð, sama hversu hátt fargjaldið er, sé lág upphæð. Sæmundur segir styrkinn eingöngu greiddan ef pantaður bíll leiðir af sér ferð, eins og hann orðar það. „Það er enginn styrkur greiddur þegar pöntuð ferð reynist platferð. Platferðir geta verið yfir þrjú þúsund á mánuði. Þessar platferðir tefja því miður okkar þjónustu þegar margir bíða eftir bíl um helgar.“ Ekki er heldur greiddur styrkur af ferðum þegar viðskiptavinir hóa í leigubíl með bleikt ljósaskilti úti á götu, að því er Sæmundur greinir frá. Alls aka 350 leigubílar Hreyfils nú með bleiku skiltin sem gerð voru árið 2007 fyrir stöðina þegar samvinnan við Krabbameinsfélagið hófst. „Bílstjórarnir, sem eru sjálfstætt starfandi, eru ekki sjálfir að veita félaginu styrkinn hver og einn, heldur leigubílastöðin sem er í eigu þeirra. Bílstjórarnir taka þátt í átaksverkefninu til að vekja athygli fólks á málefninu. Bleiku ljósin setja svip á umhverfið og hvetja almenning til að gefa þessum málum gaum, ekki bara núna á haustmánuðunum heldur allt árið. Við teljum okkur hafa hitt naglann á höfuðið með þessari aðferð. Samstaða bílstjóra í þessu máli hefur verið góð eins og í öllum öðrum málum,“ segir Sæmundur.
Mest lesið Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Ofbeldi í garð fangavarða eykst Innlent Dettifoss komið til hafnar Innlent Þinglokasamningur í höfn Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Innlent Fleiri fréttir Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Einn handtekinn eftir stunguárás Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Sjá meira