Vilja fjölga hermönnum og búnaði í Evrópu Samúel Karl Ólason skrifar 3. júní 2014 17:34 Barack Obama er hér með Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands. Vísir/AP
Bandaríkin stefna á að fjölga hermönnum og búnaði í Evrópu. Þetta sagði Barack Obama, forseti Bandaríkjanna á blaðamannafundi í Póllandi í dag. Áætlað er að kostnaður vegna þessa verði einn milljarður Bandaríkjadala. Tilkynning forsetans markar töluverða breytingu, en síðustu tvo áratugi hafa Bandaríkin fækkað hermönnum í Evrópu og litið til Kyrrahafsins. Verði tillaga Obama samþykkt af þingmönnum í Bandaríkjunum verður fjármagnið notað til að fjölga hermönnum og koma fyrir vopnum og búnaði í Evrópu. Auk þess verða fleiri sameiginlegar heræfingar haldnar. Samkvæmt embættismönnum í Hvíta húsinu stefnir Obama einnig á að bandaríski flotinn taki meiri þátt í aðgerðum NATO í Svarta hafinu. Þá munu Bandaríkin einnig stuðla að eflingu herafla nágrannalanda Rússlands sem ekki eru aðilar að NATO, eins og Úkraínu, Georgíu og Moldóvu. Obama mun hitta nýkjörinn forseta Úkraínu á morgun, Petro Poroshenko, en hann sagði í dag að hann vildi að Bandaríkin og Úkraínu ættu í góðu sambandi við Rússland. Þó sagði hann að Bandaríkin byggju yfir áætlunum til að vernda öll aðildarríki NATO. Hann kallaði eftir því að öll NATO-ríkin myndu hjálpa til við að auka sameiginlegt öryggi ríkjanna. Bronislaw Komorowski, forseti Póllands, sagði á fundinum að stjórnvöld ætli að auka fjármagn til varna landsins um tvö prósent af heildarframleiðslu Póllands.
Mest lesið Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Erlent Fleiri fréttir R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Sjá meira