Venstre vill strangari kröfur fyrir múslíma Atli Ísleifsson skrifar 28. júlí 2014 11:19 Talsmaður Vestre segir innflytjendur frá öðrum löndum en Vesturlöndum skapa mest vandamál þegar kemur að aðlögun innflytjenda að dönsku samfélagi. Vísir/AFP
Venstre í Danmörku vill nú að gerðar verði strangari kröfur til innflytjenda frá múslímskum löndum en innflytjenda frá öðrum löndum. Þetta kemur fram í grein Inger Støjberg, talsmanni Venstre í málefnum innflytjenda, í Berlingske Tidende en hún segir innflytjendur frá öðrum löndum en Vesturlöndum skapi mest vandamál þegar kemur að aðlögun innflytjenda að dönsku samfélagi. Støjberg segir að hún vilji að gera skuli strangari kröfur um að umræddir innflytjendur sæki sér menntunar eða fái atvinnu. „Við getum séð að þeir innflytjendur sem síst geta aðlagast í Danmörku koma fyrst og fremst frá múslímskum löndum.“ Støjberg minnist sérstaklega í grein sinni á imaminn Abu Bilal í Berlín í Þýskalandi sem bað um aðstoð Allah við að drepa gyðinga í ræðu sinni á föstudaginn. „Það er hryllilegt og varpar skömm á íslam.“Í samtali við DR viðurkennir hún að yfirlýsingar hennar kunni að virka umdeilanlegar. „En ef ég sem stjórnmálamaður minnist ekki á þetta, þá veit ég einfaldlega ekki hver á að gera það,“ segir Støjberg, en búist er við að Venstre muni leggja fram tillögu í þinginu um strangari kröfur til múslímskra innflytjenda nú í haust. Martin Henriksen, talsmaður Danska þjóðarflokksins, segist fagna útspili Venstre enda sé það í takt við stefnu síns flokks. Íhaldsflokkurinn hefur hins vegar hafnað málflutningi Venstre, og vill að sömu reglur gildi fyrir alla innflytjendur sem koma til Danmerkur. Ummæli Støjberg hafa vakið mikil viðbrögð í Danmörku. Garbi Schmidt, prófessor við Hróarskelduháskóla, segir í samtali við DR að það sé ýmislegt í röksemdafærslu Støjberg sem ekki standist, þar á meðal annars að „það sé mikill munur á getu og vilja til að aðlagast“, eftir því hvort þú komir til dæmis frá Bandaríkjunum eða Pakistan. Venstre er nú í stjórnarandstöðu en næstu þingkosningar fara fram í Danmörku á næsta ári.
Mest lesið Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira