93 prósent tilnefndra framkvæmdastjóra eru karlar Atli Ísleifsson skrifar 28. júlí 2014 15:14 Jean-Claude Juncker, verðandi forseti framkvæmdastjórnar ESB, hefur miklar áhyggjur af stöðu mála. Vísir/AP
Ríkisstjórnir helmings aðildarríkja ESB hafa nú tilnefnt framkvæmdastjóra til að gegna stöðu í framkvæmdastjórn Jean-Claude Juncker sem tekur við stjórnartaumunum í nóvember næstkomandi. Fjórtán hafa nú verið tilnefndir og er þar að finna eina konu, Veru Jourova frá Tékklandi. Hvert aðildarríki tilnefnir einn framkvæmdastjóra í samráði við verðandi forseta framkvæmdastjórnarinnar. Forsetinn felur þeim tilnefndu svo ákveðinn málaflokk og kýs leiðtogaráðið um tillögu forsetans. Hljóti uppstillingin aukinn meirihluta í leiðtogaráðinu þarf Evrópuþingið svo að leggja blessun sína yfir framkvæmdastjórnina í heild sinni. Juncker hvatti ríkisstjórnir aðildarríkja fyrr í mánuðinum til að tilnefna fleiri konur og hét því að verðlauna slíkt með því að fela þeim tilnefndu mikilvægan málaflokk eða stöðu varaforseta framkvæmdastjórnarinnar. Heimildarmaður EurActiv segir Juncker hafa miklar áhyggjur af þeim mikla fjölda karlmanna sem voru taldir líklegir til að verða tilnefndir. „Hann hefur lýst yfir áhyggjum sínum og hefur rætt málið kerfisbundið við leiðtoga aðildarríkjanna síðustu vikur.“ Níu konur eiga nú sæti í framkvæmdastjórn José Manuel Barroso.Half of nominations to @JunckerEU Commission now made: 50% @EPP 93% male #EUtopjobs #TenOrMore #EUCO pic.twitter.com/h6tmwduY00— Europe Decides (@EuropeDecides) July 28, 2014
Mest lesið Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Sjá meira