Brak fundið úr alsírsku vélinni Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 25. júlí 2014 09:15 Alls voru 116 um borð í vélinni sem var á leið frá Búrkína Fasó til Algeirsborgar. nordicPhotos/afp
Forseti Malí, Ibrahim Boubacar Keita, tilkynnti í gærkvöld að brak úr flugvél alsírska flugfélagsins Air Algerie hefði fundist í Sahara-eyðimörkinni í norðurhluta landsins. Þetta kom fram á erlendum fréttavefjum. Alls voru 110 farþegar um borð, þar af um fimmtíu Frakkar, og sex manna áhöfn sem var starfsfólk spænska flugfélagsins Swiftair. Að minnsta kosti tíu börn voru í vélinni. Vélin var á leið til Algeirsborgar, höfuðborgar Alsírs. Hún tók á loft í Ouagadougou í Búrkína Fasó en tæpri klukkustund síðar barst kall frá flugmanni til flugstjórnar í Níger þess efnis að breytt yrði um stefnu vegna mikils sandbyls fram undan. Mikil leit fór fram í Malí og sendu Frakkar meðal annars herflugvélar í slíkan leiðangur. François Hollande Frakklandsforseti sló öllum fundarhöldum sem hann átti fyrir höndum erlendis á frest þegar fréttist að vélin hefði horfið af ratsjá. Þegar Fréttablaðið fór í prentun höfðu ekki borist neinar nánari fréttir af því hvað hefði farið úrskeiðis þegar vélin hrapaði. Stríðsástand ríkir á svæðinu í norðurhluta Malí og skemmst er að minnast hörmunganna í síðustu viku þegar flugvél frá Malaysia Airlines var skotin niður í Úkraínu með nær þrjú hundruð manns innanborðs.
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Fleiri fréttir Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Sjá meira