48 prósent Breta myndu ganga úr ESB 22. júní 2014 12:54 vísir/afp
Fjörutíu og átta prósent Breta segjast myndu greiða atkvæði með því að ganga úr Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu, samkvæmt nýrri könnun. Þrjátíu og sjö prósent segjast myndu greiða atkvæði með áframhaldandi veru Bretlands í ESB. David Cameron forsætisráðherra Bretlands hefur boðað þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2017 um áframhaldandi veru Bretlands í Evrópusambandinu. Í nýrri könnun sem birtist í Observer, helgarútgáfu The Guardian, kemur fram að 48 prósent Breta segjast myndu greiða atkvæði með því að ganga úr Evrópusambandinu. Könnunin virðist veita vísbendingar um að þetta gæti snúist við ef Bretum tekst að semja við sambandið um breytingar á aðild landsins að því. Tækist það myndu 42 prósent greiða atkvæði með áframhaldandi veru Bretlands í Evrópusambandinu en 36 prósent myndu vilja hætta í sambandinu. Ekki virðist vera mikil trú á að Cameron takist að ná góðum samningi um breytingar við Evrópusambandið því aðeins 18 prósent Breta telja að það takist, samkvæmt könnun Observer. David Cameron hefur lagst gegn skipun Jean-Claude Juncker í embætti forseta framkvæmdastjórnar ESB þar sem talið er að Juncker muni gera það erfiðara fyrir Breta að semja um breytta aðild að sambandinu. Juncker er sagður sambandsstjórnarsinni, eða federalisti, sem er hlynntur enn frekari samvinnu ríkjanna 28 í Evrópusambandinu. Angela Merkel Þýskalandskanslari styður tilnefningu Junckers en vonir standa til að ágreiningur um tilnefningu hans verði leiddur til lykta á ríkjaráðstefnu í Brussel í þessari viku.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Sjá meira