Rauðgrænir mælast með hreinan meirihluta í Svíþjóð Atli Ísleifsson skrifar 20. ágúst 2014 14:02 Skoðanakannanir benda til þess að Stefan Löfven, formaður sænskra Jafnaðarmanna, verði næsti forsætisráðherra Svíþjóðar. Þingkosningar fara fram í landinu þann 14. september. Vísir/AFP
Rauðgrænu flokkarnir mælast með öruggt forskot á fylkingu hinna borgaralegu ríkisstjórnarflokka í nýjustu könnun Ipsos, nú þegar tæpur mánuður er til þingkosninga. Könnunin bendir til að flokkur Fredriks Reinfeldt forsætisráðherra muni missa um þriðjung fylgis síns milli kosninga. Jafnaðarmannaflokkurinn, Umhverfisflokkurinn og Vinstriflokkurinn mælast með samtals 50,4 prósent atkvæða í nýjustu könnun Ipsos og sagt er frá í Dagens Nyheter. Bandalag hægriflokksins Moderaterna, Miðflokksins, Kristilegra demókrata og Þjóðarflokksins mælist með samtals 35,6 prósent. Kosið verður til þings í Svíþjóð þann 14. september næstkomandi og er margt sem bendir til að stjórnartíð Fredriks Reinfeldt forsætisráðherra kunni senn að vera á enda. Miðflokkurinn tapar mestu milli kannanna og mælist nú rétt fyrir ofan fjögurra prósenta þröskuldinn til að ná mönnum inn á þing. Kristilegir demókratar bæta við sig fylgi og mælast aftur fyrir ofan fjögurra prósenta þröskuldinn. Flokkurinn Feminískt frumkvæði mælist með 3,4 prósenta fylgi og næði að óbreyttu ekki inn manni á þing. Flokkurinn hefur aldrei verið með fulltrúa á þingi, en náði þó inn manni á Evrópuþingið í kosningunum í maí. Svíþjóðardemókratar, sem vilja takmarka straum innflytjenda til Svíþjóðar og standa utan bandalaga, mælast svo með 9,4 prósenta fylgi. Moderaterna, flokkur Reinfeldts, mælist nú með 20,8 prósenta fylgi sem er rúmum níu prósentum undir kjörfylgi flokksins. Helsta von þeirra virðist því vera að ná að lokka til sín kjósendur sem hafa enn ekki gert upp hug sinn.Svíar opni hjörtu sín fyrir fleira flóttafólki Kosningabarátta flokkanna er í fullum gangi og vöktu orð Reinfeldts um að kjósendur ættu að opna hjörtu sín fyrir móttöku fleira flóttafólks mikla athygli. Moderaterna hafa sömuleiðis hrundið af stað nýrri auglýsingaherferð þar sem þeir vara kjósendur við þau áhrif sem möguleg valdaskipti kunni að hafa í för með sér. Talsmaður Moderaterna tilkynnti í gær að flokkurinn væri á þeirri skoðun að stærri fylkingin ætti að mynda ríkisstjórn að kosningum loknum, sama þó hún fengi ekki hreinan meirihluta. Karl-Petter Thorwaldsson, forseti sænska Alþýðusambandsins sem er með náin tengsl inn í Jafnaðarmannaflokkinn, segist hins vegar vera reiðubúinn að veðja á að Fredrik Reinfeldt hyggi á að stjórna landinu áfram með stuðningi Svíþjóðardemókrata.
Tengdar fréttir Margot Wallström aftur á fullt í sænsk stjórnmál Wallström er vinsæll stjórnmálamaður og mun tilkynningin eflaust hjálpa Jafnaðarmönnum í kosningabaráttunni. 14. ágúst 2014 13:50 Félagsmálaráðherra fékk tertu í andlitið Maður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn vegna árásarinnar. 18. ágúst 2014 15:54 Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Erlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Innlent Fleiri fréttir Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Sjá meira
Margot Wallström aftur á fullt í sænsk stjórnmál Wallström er vinsæll stjórnmálamaður og mun tilkynningin eflaust hjálpa Jafnaðarmönnum í kosningabaráttunni. 14. ágúst 2014 13:50
Félagsmálaráðherra fékk tertu í andlitið Maður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn vegna árásarinnar. 18. ágúst 2014 15:54