Nýr forseti Úkraínu tilbúinn til viðræðna við Rússland Samúel Karl Ólason skrifar 27. maí 2014 13:19 Mikinn reyk bar frá flugvellinum í Dónetsk. Vísir/AP
Nýkjörinn forseti Úkraínu, Petro Poroshenko, segist tilbúinn til viðræðna við yfirvöld í Moskvu til að binda endi á átökin í austurhluta landsins. Hann lýsti þó aðskilnaðarsinnunum sem sómölskum sjóræningjum og yfirvöld í Kænugarði gerðu í gær loftárásir á flugvöll í Dónetsk, sem var í höndum aðskilnaðarsinna. Loftárásirnar eru sýnilegasta aðgerð hers Úkraínu gegn aðskilnaðarsinnunum síðan herinn byrjaði að þrengja að þeim í síðasta mánuði.AP fréttaveitan segir frá því að í Dónetsk hafi sprengingar heyrst frá flugvellinum og þotum og þyrlum hafi verið flogið yfir borgina. Talsmaður aðgerðanna gegn aðskilnaðarsinnunum skrifaði á Facebooksíðu sína í gær að herinn hafi gefið aðskilnaðarsinnunum þann úrslitakost að leggja niður vopn sín. Því hafi verið hafnað og loftárásirnar gerðar í kjölfarið. Þá sá blaðamaður AP bílum ekið á flugvöllin og í þeim fjölmarga vopnaða menn. Einn leiðtogi aðskilnaðarsinnanna í Donetsk sagði þá hafa verið senda á flugvöllinn eftir að stuðningsmenn þeirra hafi verið handsamaðir af hernum.Karlmaður breiðir hér yfir lík konu sem féll vegna sprengjubrota í loftárás stjórnvalda í Úkraínu.Vísir/APPoroshenko sagði í gær að hernaðgerðirnar í austurhluta Úkraínu mættu ekki standa yfir í tvo til þrjá mánuði. „Þær ættu að, og munu, standa yfir í nokkra klukkutíma.“ Hann fór einnig ófögrum orðum um aðskilnaðarsinna í Dobass héraði Úkraínu. „Markmið þeirra er að gera Donbass að Sómalíu, þar sem þeir stjórna með vélbyssum sínum. Ég mun ekki leyfa því að gerast innan Úkraínu,“ sagði Prorshenko og bætti við að hann vonaðist til að stjórnvöld í Rússlandi muni styðja hann í þeirri viðleitni að koma jafnvægi á austurhluta landsins. „Við erum tilbúnir til viðræðna við fulltrúa Kænugarðs og Petro Poroshenko,“ sagði Sergey Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands. Hann bætti því við að þetta væri tækifæri sem yrði að nýta.
Mest lesið Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Innlent Fannst heill á húfi Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Fella niður 64 milljarða sekt Trump Erlent Gjörólíkt gengi frá kosningum Innlent Fleiri fréttir Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi Sjá meira