Tískuljósmyndir sem vísa til nauðgana umdeildar í Indlandi Samúel Karl Ólason skrifar 6. ágúst 2014 11:18 Margir telja myndirnar óviðeigandi. Mynd/Twitter
Tískuljósmyndir sem virðast vísa til nauðgunar í rútu í Indlandi hafa ollið miklum usla á samfélagsmiðlum í landinu. Mörgum þykir þær vísa til hópnauðgunar sem átti sér stað í Delhi árið 2012 og leiddi til hertra laga gegn nauðgunum. Myndasyrpan var fyrst birt á síðunni Behance, en var síðan tekin þaðan eftir hörð mótmæli á samfélagsmiðlum. Nokkrar myndanna voru síðan birtar á síðunni Buzzfeed, þar sem rætt var við ljósmyndarann. Myndirnar sem báru nafnið: The Wrong turn, voru teknar af ljósmyndaranum Raj Shetye og sýna ungar konur verja sig gegn hópi manna í rútu. Sjálfur segir ljósmyndarinn við BBC að myndirnar sýndu raunveruleikan fyrir konur í Indlandi og væru ekki byggðar á nauðgun konunnar sem fjölmiðlar kölluðu Nirbhaya, sem þýðir óttalaus. Hún var 23 ára sjúkraþjálfaranemi og var nauðgað af hópi manna í rútu í Delhi í Indlandi. Nauðgunin leiddi til langra mótmæla og voru yfirvöld í Indlandi neydd til að herða lög gegn nauðgunum í landinu. Hún lést skömmu seinna af sárum sínum. Fjórir menn voru dæmdir til dauða fyrir ódæðið og sá fimmti, sem þá var undir lögaldri, var dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar. Raj Shetye segist ekki hafa verið að vísa til þessa atviks sérstaklega. Heldur sé hann að varpa ljósi á nauðganir og að jafnt ríkir sem fátækir geti orðið fyrir árásum. Hann sagði myndirnar sýna raunverulega hættu kvenna í Indlandi. Myndasyrpan hefur vakið hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum og sjá má brot af umræðunni á Twitter hér að neðan:Mynd/Twitter#Nirbhaya Tweets
Mest lesið „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Erlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Fleiri fréttir Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Sjá meira