Fundu tilbúna sprengju í húsi í Þelamörk Atli Ísleifsson skrifar 6. ágúst 2014 21:43 Ekki er langt síðan norska ríkisstjórnin og lögreglan varaði við að hryðjuverkaógn steðjaði að landinu. Vísir/AFP
Norska lögreglan hefur handtekið tvo menn í tengslum við sprengjufund í íbúðarhúsi í smábæ í Þelamörk. Íbúum í nágrenni hússins hefur verið gert að yfirgefa heimili sín. Spregjusveit Óslóarstörfum er nú að störfum í húsinu. Á vef norsku ríkissjónvarpsins kemur fram að talsmaður lögreglu segir að sprengjan hafi fundist í íbúðarhúsi í Snurråsen í Siljan, vestur af höfuðborginni Ósló, um sjöleytið í kvöld. „Lögregla hefur handtekið tvo. Nágrönnum hefur verið tilkynnt um málið og fluttir frá staðnum. Lögreglan í Þelamörk hefur einnig leitað aðstoðar sprengjusveitar Óslóarlögreglunnar,“ segir Vidar Aaltvedt í samtali við norska fjölmiðilinn TA. Á vef Aftenposten segir að þeir handteknu séu par, 33 og 23 ára, og norskir ríkisborgarar. Bæði hafa þau komið við sögu lögreglu áður. Á vef NRK segir að sprengjan hafi fundist þegar lögregla hugðist handtaka annan hinna grunuðu vegna annars máls. Um er að ræða heimalagaða sprengju, líklegast úr sprengiefninu TNT. Lögregla segist ekki hafa sérstaka ástæðu til að gruna að parið hafi sérstök tengsl við hryðjuverkasamtök, en þau verða yfirheyrð í nótt. Lögregla hyggst rannsaka íbúðarhúsið enn frekar í nótt og athuga hvort fleiri sprengjur leynist þar. Ekki er búist við að nágrannar geti snúið aftur til síns heima í nótt. Um hundrað hús eru í hverfinu sem um ræðir í Siljan og hefur lögreglan girt af svæði um 200 metrum frá húsinu. Ekki er langt síðan norska ríkisstjórnin og lögreglan varaði við að hryðjuverkaógn steðjaði að landinu, en hún lækkaði viðbúnaðarstig aftur í síðustu viku.
Tengdar fréttir Íslendingar hugsi yfir hryðjuverkaógn Íslendingar hafa hringt í sendiráðið í Ósló til að spyrja hvort óhætt sé að ferðast þangað. Íslenski sendiherrann hvetur fólk til þess að kynna sér upplýsingar frá norskum stjórnvöldum áður en það fer. Ekki sé ástæða til að vara við ferðum. 26. júlí 2014 11:00 „Við getum ekki tryggt öryggi fólks“ Trúverðug hryðjuverkaógn steðjar nú að Noregi og höfuðborgin Ósló er eitt af líklegustu skotmörkunum í mögulegri árás. 24. júlí 2014 13:12 Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Sjá meira
Íslendingar hugsi yfir hryðjuverkaógn Íslendingar hafa hringt í sendiráðið í Ósló til að spyrja hvort óhætt sé að ferðast þangað. Íslenski sendiherrann hvetur fólk til þess að kynna sér upplýsingar frá norskum stjórnvöldum áður en það fer. Ekki sé ástæða til að vara við ferðum. 26. júlí 2014 11:00
„Við getum ekki tryggt öryggi fólks“ Trúverðug hryðjuverkaógn steðjar nú að Noregi og höfuðborgin Ósló er eitt af líklegustu skotmörkunum í mögulegri árás. 24. júlí 2014 13:12