Fékk tæplega 24 milljarða dollara í bætur frá tóbaksfyrirtæki Randver Kári Randversson skrifar 20. júlí 2014 12:38 RJ Reynolds hefur verið dæmt til að greiða ekkju manns, sem lést úr lungnakrabbameini, tæplega 24 milljarða dollara í skaðabætur. Vísir/Getty Images
Dómstóll í Flórída-fylki í Bandaríkjunum hefur dæmt annað stærsta tóbaksfyrirtæki landsins, RJ Reynolds til að greiða ekkju manns sem lést úr lungnakrabbameini 23,6 milljarða dollara í bætur. Þetta er hæsta upphæð sem einstaklingur hefur nokkurn tímann fengið í skaðabætur í dómsmáli í Flórída. Greint er frá málinu á vef BBC. Cynthia Robinson höfðaði mál gegn fyrirtækinu árið 2008, þar sem hún fór fram á skaðabætur vegna andláts eiginmanns síns, sem lést árið 1996. Lögfræðingar frú Robinson héldu því fram við réttarhöldin að RJ Reynolds hefði vanrækt að upplýsa neytendur um skaðsemi tóbaksneyslu. Vanræksla fyrirtækisins hafi leitt til dauða Micheals Johnson, eiginmanns konunnar, sem lést úr lungnakrabbameini eftir að hafa orðið háður tóbaki og hafi mistekist að hætta reykingunum þrátt fyrir margar tilraunir til þess. Eftir að dómurinn hafði verið kveðinn upp sagðist einn lögfræðinga konunnar vona að RJ Reynolds og önnur tóbaksfyrirtæki geri sér ljóst að þau verði að hætta að stofna lífi saklauss fólks í hættu. Talsmenn RJ Reynolds hafa lýst því yfir að dómnum verði áfrýjað til hæstaréttar í Bandaríkjunum þar sem niðurstaðan sé fullkomlega órökrétt og gangi mun lengra en það sem sanngjarnt gæti talist. Þetta er hæsta upphæð sem einstaklingi hefur verið dæmd í skaðabætur í nokkru dómsmáli í Flórída-fylki. Mörg svipuð mál í Flórída hafa endað með greiðslu smærri upphæða til reykingamanna og aðstandenda þeirra eftir að hæstiréttur fylkisins úrskurðaði að aðeins þurfi að sýna fram á fíkn af völdum reykinga og að veikindi stafi tóbaksneyslu.
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Sjá meira