Erlent

Nóbelsverðlaunahafinn Nadine Gordimer látin

Atli Ísleifsson skrifar
Gordimer hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1991.
Gordimer hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1991. Vísir/AFP
Suður-afríski rithöfundurinn Nadine Gordimer lést á heimili sínu í Jóhannesarborg í dag, 90 ára að aldri.

Gordimer hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1991 og er þekktust fyrir bækur sínar Burger´s Daughter, July´s People og My Son´s Story.

Gordimer var mikil baráttukona gegn apartheid-stefnunni í Suður-Afríku og skrifaði rúmlega þrjátíu bækur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×