Enski boltinn

Mourinho ver dýfu hins „heiðarlega“ Cahill | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gary Cahill fékk gult spjald fyrir þessa tæklingu.
Gary Cahill fékk gult spjald fyrir þessa tæklingu. vísir/getty
Chelsea vann enn einn sigurinn í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina þegar liðið lagði Hull að velli, 2-0, á Stamford Bridge.

Eden Hazard kom meistaraefnum Chelsea í 1-0 á sjöundu mínútu leiksins og á 68. mínútu tryggði Diego Costa sigur heimamanna með öðru marki leiksins.

Hlutirnir hefðu getað verið öðruvísi því Chelsea átti að missa mann af velli. Gary Cahill verður að teljast mjög heppinn að hafa fengið að klára leikinn.

Cahill hefði auðveldlega getað fengið rautt spjald fyrir rosalega tæklingu á Sone Aluku á 38. mínútu, en slapp með gult spjald frá dómara leiksins, Chris Foy.

Snemma í seinni hálfleik hefði Cahill svo auðveldlega getað fengið annað gult spjald þegar hann henti sér niður í teig Hull, en slapp með skrekkinn. Eðlilega voru gestirnir ekki kátir með Chris Foy.

Steve Bruce og José Mourinho ræða saman á hliðarlínunni.vísir/getty
Chelsea-menn voru svolítið að kasta sér niður í leiknum, en Foy dómari spjaldaði bæði Willian og Diego Costa fyrir dýfur í leiknum.

„Hann bókaði samt ekki Cahill sem var stór ákvörðun. Hann klúðraði henni alveg. Þetta er til skammar og maður spyr sig um heiðarleika dómaranna. Er maðurinn hræddur við að vera á Stamford Bridge?“ sagði Garth Crooks, knattspyrnusérfræðingur BBC, um dómgæsluna.

Fleiri fyrrverandi leikmenn á borð við Gary Lineker, Robbie Savage og Danny Murphy tóku undir orð Crooks, en þeir eru allir orðnir þreyttir á dýfum eins og flestir sem fylgjast með sportinu.

„Þessar dýfur eru orðnar kjánalegar. Leikmenn þurfa að fara að dæma þetta sjálfir. Til hvers eru leikmannasamtökin ef leikmennirnir fara ekki eftir neinum siðareglum,“ sagði Lineker.

„Hvenær hættir þetta? Þetta er bara að færast í aukana. Ég vil að dómarar mæti eftir leik og útskýri ákvarðanir sínar, en það mun ekki gerast. Gary Cahill komst upp með þetta í dag, en þetta verður að hætta,“ sagði Savage.

„Hull var óheppið því Gary Cahill slapp með skrekkinn. Hvernig Cahill brást við dýfunni bjargaði honum. Þetta er annað hvort víti eða gult spjald,“ sagði Danny Murphy.

Einn maður stóð þó með Cahill og hinum tveimur sem fengu gul spjöld fyrir dýfur. José Mourinho, stjóri Celsea, var ekki sammála dómaranum í atvikum Costa og Willian og trúir ekki að Cahill hafi hent sér niður.

„Við erum heiðarlegir í Chelsea. Willian var á miðjum vellinum þannig það var engin ástæða fyrir hann til að dýfa sér. Mér fannst Diego ekki dýfa sér heldur,“ sagði Mourinho í sjónvarpsviðtali eftir leikinn og hélt áfram á blaðamannafundinum.

„Ef þið segið mér að ég hafi rangt fyrir mér með Cahill þá hefur eitthvað gerst. Þeir hafa staðið fyrir honum, snert hann eða Cahill misst jafnvægið. En ég trúi því ekki að þessi stóri heiðarlegi strákur hafi dýft sér í vítateig andstæðinganna,“ sagði José Mourinho.

Tæklingin og dýfan hjá Gary Cahill:

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×