Mourinho stefnir ekki á árangur „The Invincibles“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2014 11:00 Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea. Vísir/Getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að liðið sitt muni alltaf reyna að sækja sigra í stað þess að spila upp á jafntefli. Chelsea hefur leikið 21 leik í öllum keppnum á tímabilinu og enn ekki tapað leik. Chelsea mætir Tottenham í kvöld á heimavelli. Auðvitað eru menn farnir að bera saman Chelsea-liðið í dag við Arsenal-liðið sem tapaði ekki leik tímabilið 2003-04. Arsenal var þá með 26 sigra og 12 jafntefli í 38 leikjum og fékk gælunafnið "The Invincibles" eða „Hinir ósigruðu“. „Við erum ekki að stefna á að jafna það. Ef staðan verður enn 0-0 á móti Spurs þegar tuttugu mínútur eru eftir þá munum við ekki hugsa um að verja stigið til að vera enn taplausir. Ekki möguleiki," sagði Jose Mourinho við BBC. Chelsea hefur unnið tíu leiki og gert þrjú jafntefli í fyrstu þrettán leikjum tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal-liðið frá 2003-04 var með nákvæmlega sama árangur eftir þrettán leiki en var þá aðeins með eins stigs forskot á Chelsea. „Ef þú gerir tíu jafntefli þá færðu tíu stig. Ef þú vinnur fimm leiki og tapar fimm leikjum þá færðu fimmtán stig. Við munum spila til sigurs og stundum munum við tapa. Ég er sáttari með 15 stig og einhver töp en tíu stig og að vera enn ósigraður," sagði Mourinho. Chelsea hefur sex stiga forskot á Manchester City þegar þriðjungur tímabilsins er að baki. „Mælikvarðinn í fótboltanum er í því hve marga titla þú vinnur. Við verðum að reyna að breyta okkar frammistöðu og góðri spilamennsku í titla. Það er mikið eftir af mótinu. Eru lið sem eru 10, 12, 14 og 15 stigum á eftir okkur út úr í titilbaráttunni? Ég held ekki," sagði Mourinho.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira