Kúba leggur mikið af mörkum til baráttunnar við ebólu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. október 2014 12:33 Hundruðir heilbrigðisstarfsmanna hafa farið frá Kúbu til Vestur-Afríku seinustu misseri. Vísir/Getty
Þrátt fyrir að hafa ekki úr miklum fjármunum að moða og sæta viðskiptabanni af hálfu Bandaríkjanna hefur Kúba sent nokkur hundruð manns til Vestur-Afríku til vinna gegn útbreiðslu ebóluveirunnar og lækna sjúka. Í umfjöllun New York Times um framlag Kúbu til baráttunnar gegn ebólu segir að landið hafi gert það sem vestrænar þjóðir hafi veigrað sér við: að senda heilbrigðisstarfsfólk á vettvang. Mikil þörf sé fyrir lækna og hjúkrunarfólk í þeim löndum þar sem veiran hefur breiðst út þar sem fjöldi heilbrigðisstarfsmanna hafa dáið úr ebólu. Alþjóðaheilbrigðisstofnun hefur yfirumsjón með kúbönsku lækna-og hjúkrunarteymunum en ekki liggur fyrir hvernig og hvert stofnunin myndi flytja ef einhverjir munu smitast af veirunni. Ekki er til dæmis víst að heilbrigðisstarfsfólk frá Kúbu muni hafa aðgang að læknamiðstöð sem Bandaríkin hafa sett upp í Monroviu, höfuðborg Líberíu. Heilbrigðiskerfi Kúbu er með því besta sem þekkist í Rómönsku Ameríku, og þó víðar væri leitað, og koma nemendur víðs vegar að úr heiminum til að læra læknisfræði og hjúkrunarfræði í Havana. Kúba sendi meðal annars fjölda heilbrigðisstarfsfólks til Haítí í kjölfar jarðskjálftans þar árið 2010. Þá bauðst Kúbustjórn til að senda hjálparlið til New Orleans í kjölfar hvirfilbylsins Katrínu árið 2005 en Bandaríkin afþökkuðu boðið.
Mest lesið Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Innlent Gerir stólpagrín að Von der Leyen Erlent Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Innlent Appelsínugul viðvörun á morgun Veður Íslendingar óska eftir aðstoð Innlent Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Erlent Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Innlent Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Erlent Stríðið muni halda áfram út vikuna Erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Sjá meira