„Hættulegustu mýflugur álfunnar“ komnar til Danmerkur Atli Ísleifsson skrifar 21. október 2014 13:38 Flugurnar eru af Culex-ætt og ekki hættulegar einar og sér. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Sérstök tegund mýflugu sem getur smitað fólk af Vestur-Nílarveiki hefur í fyrsta sinn fundist í Danmörku. Í frétt danska ríkisútvarpsins kemur fram að þetta sé í fyrsta sinn sem tegundin finnst í Danmörku og að aldrei hafa flugurnar fundist svo norðarlega í álfunni. Mýflugurnar fundust í miklu magni í votlendi í bænum Greve, suðvestur af Kaupmannahöfn. Flugunum hefur verið lýst sem þeim hættulegustu í álfunni og geta smitað fólki af gulu veikinni, beinbrunasótt, auk Vestur-Nílarveiki. Helstu einkenni Vestur-Nílarveikinnar eru hár hiti, hausverkur og vöðvaverkir. Smit getur leitt til heilabólgu eða heilahimnubólgu sem leiðir í 4 til 14 prósentum tilvika til dauða, að því er segir í frétt Sydsvenskan. Eldra fólk verður oftast verst úti og ekki eru til nein sérstök lyf til að vinna gegn veikinni. Flugurnar eru af Culex-ætt og ekki hættulegar einar og sér. Þær geta hins vegar borið smit milli smáfugla þar sem veiran þrífst vanalega. Ef flugan hefur sogið úr fugli smitað blóð getur hún einnig borið veiruna í menn.
Mest lesið Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Innlent Gerir stólpagrín að Von der Leyen Erlent Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Innlent Appelsínugul viðvörun á morgun Veður Íslendingar óska eftir aðstoð Innlent Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Erlent Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Innlent Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Erlent Stríðið muni halda áfram út vikuna Erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Sjá meira