Keane: Hefði getað afhausað Eið Smára Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. október 2014 10:45 Vísir/Getty
Í nýútkominni ævisögu Roy Keane, The Second Half, rifjar hann upp þegar Jose Mourinho stýrði sínum fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni. Það var haustið 2004 og Eiður Smári Guðjohnsen tryggði Chelsea 1-0 sigur á Manchester United á Stamford Bridge. „Þetta var fyrsti leikur Mourinho í enskri knattspyrnu. Ég man eftir markinu og mikilvægi þess. Mourinho var þegar orðinn „Sá sérstaki“ og sigur gegn okkur færði liðinu sjálfstraust og kom því á góðan skrið,“ segir í bókinni en Chelsea varð Englandsmeistari þetta vor eftir hálfrar aldar bið. „Ekki gleyma því að Chelsea varð í öðru sæti deildarinnar síðasta tímabili á undan - áður en Mourinho tók við.“ Markið sem Eiður Smári skoraði kom strax á fimmtándu mínútu leiksins. Chelsea komst í skyndisókn og Didier Drogba skallaði sendingu Geremi frá hægri kantinum yfir Roy Keane sem spilaði sem miðvörður í leiknum. Eiður Smári tímasetti hlaupið hárrétt, lyfti boltanum yfir Tim Howard í markinu og ýtti honum yfir línuna - með Keane í bakinu. „Hefði ég getað afhausað Guðjohnsen þegar hann kláraði færið? Kannski,“ sagði Keane enn fremur en hann viðurkenndi að Chelsea hafi verið sterkari aðilinn í leiknum. „Tímabilið endurspeglaðist í þessum leik. Chelsea var betra liðið í þessum leik en við vorum óheppnir. Það munaði litlu og við vorum ekki lélegir. Við vorum þó alltaf að elta.“
Enski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira