„Guðjón gat verið svolítið villtur“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. október 2014 11:30 Guðjón Þórðarson gerði góða hluti með Stoke þegar John Rudge var þar. vísir/getty
John Rudge, fyrrverandi yfirmaður knattspyrnumála hjá Stoke, fagnaði 70 ára afmæli sínu á dögunum, og hefur í tilefni þess rifjað upp merkan fótboltaferil sinn í stóru viðtali við The Sentinel, staðarblaðið í Stoke. Rudge átti farsælan feril sem leikmaður, en hann spilaði í sextán ár frá 1961-1977 áður en hann tók við starfi knattspyrnustjóra hjá Port Vale. Þegar hann var rekinn þaðan árið 1999 var hann nánast um leið ráðinn til Stoke. Rudge var fjórtán ár í starfi sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Stoke og fylgdi liðinu úr C-deildinni og upp í úrvalsdeildina. Í þeim hluta viðtalsins sem birtur er í dag rifjar hann upp árin sem Stoke var undir eignarhaldi Íslendinga. Íslenska eignarhaldinu fylgdi íslenskur knattspyrnustjóri, Guðjón Þórðarson. Hann kom liðinu upp í B-deildina í þriðju tilraun eftir að komast í umspilið öll þrjú árin.Guðjón vann framrúðubikarinn með Stoke á Wembley.vísir/getty„Guðjón var ástríðufullur og hann gat verið svolítið villtur, en við áttum frábært samstarf,“ segir Rudge um Guðjón Þórðarson. „Mér fannst hann óheppinn að komast ekki upp um deild fyrr. Og þegar hann loks komst upp var hann rekinn.“ „Þetta var flókið mál með eignarhaldið. Guðjón lenti upp á kant við stjórnarformanninn Gunnar Gíslason og hélt að hann myndi endast lengur en hann, sérstaklega eftir að komast upp um deild. En þegar allt kom til alls kusu eigendurnir á móti honum og Guðjón var látinn fara.“ Stoke var í eigu Íslendinga í sex og hálft ár, og segir í viðtalinu að þau ár séu umdeild. Rudge tekur þó upp hanskann fyrir Íslendingana og segir þá alltaf hafa viljað gera gott fyrir félagið. „Íslendingarnir voru gott fólk og þeir vildu gera vel úr sinni fjárfestingu. Ef liðið hefði komist upp á fyrsta ári er ég viss um að þeir hefðu sett meiri pening í liðið. Hver veit hvað hefði gerst þá?“ segir John Rudge.
Enski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira