Enski boltinn

Everton lagði Burnley

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Eto´o skorar með skalla
Eto´o skorar með skalla vísir/getty
Everton vann nýliða Burnley 3-1 á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Everton var 2-1 yfir í hálfleik.

Samuel Eto‘o kom Everton yfir strax á fjórðu mínútu en Danny Ings jafnaði metin á 20. mínútu.

Markaveislan í byrjun leiks hélt áfram níu mínútum síðar þegar Romelu Lukaku kom Everton yfir á ný.

Eto‘o gerði út um leikinn fimm mínútum fyrir leikslok með öðru marki sínu en hann var hársbreidd frá því að skora þrennu í leiknum.

Everton lyfti sér upp í 9. sæti deildarinnar með 12 stig. Burnley er í næst neðsta sæti með 4 stig eftir 9 umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×