Monk: Ætti að skammast sín Anton Ingi Leifsson skrifar 19. október 2014 17:37 Monk á hliðarlínunni. Vísir/Getty
Gary Monk, stjóri Swansea, var skiljanlega hundóánægður með dómarann Michael Oliver í leik liðsins gegn Stoke í dag. Oliver dæmdi víti á Swansea, en um dýfu var að ræða. „Að fara héðan með ekkert stig er vonbrigði. Við fengum frábær tækifæri, en því miður náðum við ekki að skora fleiri mörk," voru fyrstu viðbrögð Monk í leikslok. „Vítið sem við fengum var klárt víti. Ryan Shawcross heldur um Bony sem endar í jörðinni. Seinna vítið er afleit ákvörðun. Það versta við þetta er að það eru margar ákvarðanir á þessu tímabili sem eru ekki að falla með okkur." „Ég leit strax á bekkinn hjá Stoke og þeir trúðu þessu ekki einu sinni. Það segir allt sem segja þarf. Þetta var klár dýfa og leikmaðurinn svindlaði og dómarinn svindlaði á okkur. Þetta kom líka á mikilvægum tíma. Við hefðum farið með 1-0 inn í hálfleikinn og þetta hefði verið öðruvísi leikur," sagði hundfúll Monk og var hvergi nærri hættur. „Leikmaðurinn ætti að skammast sín. Ég myndi ekki vilja fara heim til fjölskyldunnar og láta sjá mig - þannig er mitt líf. Fyrir mér er þetta skömm að sjá þetta og honum ætti að vera refsað fyrir þetta." „Þetta var ein af augljósustu dýfum sem ég hef séð. Ef leikmaður minn hefði gert þetta, hefði hann ekki spilað næsta leik. Þessu verður að útrýma." „Dómarinn var eini á vellinum sem fannst þetta vera víti. Allir á vellinum voru hissa. Ég hef sent þetta atvik inn til enska knattspyrnusambandsins, en engin svör fengið frá Mike Riley (formaður dómaranefndarinnar)," sagði brjálaður Monk í leikslok.Hughes hugsi.Vísir/GettyKollegi hans hjá Stoke Mark Hughes, var ekki alveg á sama máli varðandi vítaspyrnurnar tvær. „Ryan Shawcross hefur verið uppmálaður í fjölmiðlum að hann sé alltaf að brjóta á sér inn í vítateignum sem er ekki rétt. Það eru allir að halda í hvorn annan í hornum. Wilfried Bony er stór strákur og hann fór auðveldlega niður í mínum augum," sagði Hughes og aðspurður um seinni vítaspyrnudóminn sagði hann: „Victor Moses kom á hraða sínum inn í teiginn, Angel Rangel kom og hindraði hann. Ég heyrði að Monk talaði um að minn leikmaður væri að svindla, sem er óafsakanlegt í mínum augum." „Auðvitað er hann æstur og við þurfum að koma í viðtöl 20 mínútum fyrir leik. Stundum þarftu bara að bíta í tunguna, en það kemur kannski með reynslunni," sagði Hughes að lokum.
Enski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira