Leigubílstjórar í Sacramento ósáttir við að þurfa að taka enskupróf Kjartan Atli Kjartansson skrifar 12. ágúst 2014 15:35 Leigubílstjórar í Sacramento eru ósáttir.
Leigubílstjórar í Sacramento í Bandaríkjunum eru ósáttir við ákvörðun borgaryfirvalda, en þeir hafa nú verið skikkaðir til þess að taka enskupróf ef þeir vilja halda réttindum sínum og starfi. Talsmaður borgaryfirvalda segir að prófið hafi verið sett á eftir ábendingar frá íbúum Sacramento. „Margir hafa kvartað undan því að geta ekki rætt nógu skýrt við bílstjórana. Margir farþegar sögðust ekki hafa getað komið því til skila hvert þeir vildu fara," segir Brad Wasson. Prófið er tvíþætt, annar hlutinn er tekinn skriflega og hinn í gegnum netið. Leigubílstjórar sem vilja halda leyfum sínum þurfa að þreyta prófið. Tuttugu og átta bílstjórar hafa tekið prófið og féllu átján þeirra á að minnsta kosti öðrum hluta þess.Í samtali við útibú fréttastofu CBS sjónvarpsstöðvarinnar í Sacramento segir Mohammad Ahsan að prófið sé alltof erfitt. Hann féll á prófinu. „Þeir notuðu mjög erfið orð, mjög erfiða ensku. Það ætti ekki að gera vandamál úr því ef maður notar auðvelda ensku," segir hann. Markmið prófsins er að spyrja spurninga sem ættu að vera leigubílstjórum mikilvægar. Til dæmis er spurt um samheiti og orðaforða. Leigubílstjórar hafa kvartað undan því að spurningar tengist öðru en nauðsynlegum orðaforða, sem þeir þurfa að nota í starfi sínu. Borgaryfirvöld segja það ekki koma til greina að leggja prófið niður en Wasson segir borgina tilbúna að taka við ábendingum um hvernig megi bæta það, þannig að leigubílstjórar verði sáttir. Í frétt CBS kemur fram að einhverjir bílstjórir íhugi að láta réttindi sín renna út, frekar en að reyna að taka prófið. Þeir hræðist að falla, því ef þeir falli þrisvar missi þeir réttindin. Wasson segir að sú regla verði þó líklega endurskoðuð.Hér að neðan má sjá sjónvarpsfrétt um málið.
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Innlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Fleiri fréttir Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Sjá meira