Láta reyna á nýtt lyf gegn ebólu Birta Björnsdóttir skrifar 12. ágúst 2014 20:00
Lyfið heitir Zmapp, en það hefur enn ekki verið prófað á mönnum, eins og alsiða er þegar ný lyf eru sett á markað. Í ljósi útbreiðslu sjúkdómsins hefur þó verið ákveðið að láta á það reyna hvort lyfið virki, þótt lítið sé vitað um mögulegar aukaverkanir til að mynda. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin sagði það réttlætlanlegt í ljósi aðstæðna og forseti Líberíu, Ellen Johnson Sirleaf , sagði að meira en helmings þeirra sem smitist af ebólu bíði dauðinn einn og sýktir hafi því litlu að tapa í þessum efnum. Tveir líberískir læknar verða þeir fyrstu sem fá lyfið í Afríku, en það hefur þegar verið reynt á þremur vesturlandabúum. Einn þeirra, spænskur prestur sem hafði dvalist í Líberíu en var fluttur með mikilli viðhöfn á sjúkrahús í Madrid í síðustu viku, lést í dag. Sjúkrahúsinu hefur nú verið lokað sökum smithættu. Talsverðrar reiði gætir vegna þess hve fáir Afríkubúar hafa fengið lyfið en langflestir þeirra sem sýktir eru koma frá Afríku. Virkni lyfsins á eftir að koma í ljós, en ljóst er að það er af skornum skammti. Bandarískur framleiðandi lyfsins gefur Líberíumönnum lyfið og hefur ákveðið að senda þeim alla tiltæka skammta og ekki sé von á meiru í bráð. Yfirvöld í Rúanda lýstu því yfir í dag að þýskur maður þar í landi, sem talinn var smitaður af ebólu, reyndist ekki hafa smitast af veirunni. Ekkert smit hefur því enn komið upp þar í landi.
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent Fleiri fréttir Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Sjá meira