Boris Johnson hyggur á endurkomu í breska þingið Randver Kári Randversson skrifar 6. ágúst 2014 16:08 Boris Johnson, borgarstjóri Lundúnaborgar, þykir litríkur stjórnmálamaður. Vísir/AFP
Boris Johnson, borgarstjóri Lundúnaborgar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til þings í þingkosningunum sem fram fara í Bretlandi á næsta ári. David Cameron, forsætisráðherra, segir áform Johnsons fagnaðarefni fyrir Íhaldsflokkinn. Á vef BBC kemur fram að í lok ræðu sinnar um Evrópumál í London í dag hafi Johnson sagt það afar líklegt að hann færi í framboð til fulltrúadeildar breska þingsins á næsta ári þó svo hann hafi ekki ákveðið hvaða kjördæmi hann biði sig fram í. Hann hefur jafnframt lýst því yfir áður að hann muni sitja áfram út kjörtímabil sitt sem borgarstjóri Lundúnaborgar, sem klárast árið 2016. Boris Johnson sat á þingi fyrir Íhaldsflokkinn frá árinu 2001 þar til hann varð borgarstjóri Lundúnaborgar árið 2008. Í nokkurn tíma hafa verið vangaveltur verið uppi um hugsanlega endurkomu Johnsons í breska þingið og möguleika hans á að verða forsætisráðherraefni Íhaldsflokksins þegar David Cameron lætur af völdum. Johnson sagði nýverið í viðtali við BBC að það væri afar ólíklegt að hann tæki einhvern tímann við af David Cameron sem leiðtogi Íhaldsmanna, þar sem staðan væri einfaldlega ekki laus. Í kjölfar ummæla Johnsons sagði David Cameron á Twitter að áform Johnsons um endurkomu í breska þingið væru góð tíðindi, þar sem hann vilji hafa alla sína stjörnuleikmenn á vellinum.
Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Erlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Fleiri fréttir Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Sjá meira