Enn skolar Legó á land í Cornwall Atli Ísleifsson skrifar 21. júlí 2014 13:24 Fleiri milljónir lególeikfanga voru í einum gámnum sem fór í sjóinn undan ströndum Englands árið 1997. Vísir/Lego lost at sea
Lególeikföngum skolar enn á land á ströndum Cornwall í suðvesturhluta Englands í stórum stíl, um sautján árum eftir að gámur fullur af legói fór í sjóinn árið 1997. Milljónir lególeikfanga voru í gámnum en í stað þess að verða eftir á hafsbotni hafa þau leitað upp á yfirborðið og skolað á land. Í frétt BBC segir að legóið hafi veitt vísindamönnum góða innsýn í heim hafsins og strauma þess. „Leyfið mér að athuga hvort ég finni bjúgsverð,“ segir Tracey Williams, íbúi Newquay í samtali við BBC, þegar hún rótar milli stórra steina á Perran Sands ströndinni með priki. Henni tekst það ekki, en finnur þó legóblóm, sem reynist vera í fínasta ásigkomulagi þrátt fyrir sautján ár í sjónum. Legóblómið er eitt af 353.264 sem fór í sjóinn þegar 62 gámar fóru af flutningaskipinu Tokio Express þann 13. febrúar 1997. Einn gámanna var fullur af lególeikföngum, um 4,8 milljónum stykkja, en skipið var á leið til New York í Bandaríkjunum. Fljótlega eftir slysið fór lególeikföngum að skola á land og svo er enn í dag. Tracy Williams heldur úti Facebook síðu, Lego lost at sea, þar sem hún skráir legófundi sína. „Það eru til sögur af krökkum undir lok tíunda áratugarins þar sem þeir voru með fötur fullar af legódrekum og seldu þá,“ segir Williams og bætir við að það sé sérstaklega óvenjulegt og gleðilegt að finna legódreka eða legókolkrabba á ströndum Cornwall nú til dags. Í frétt BBC er einnig rætt við haffræðinga og líffræðinga um hvernig lególeikföngin hafa stuðlað að aukinni þekkingu um hafsstrauma og þá hættu sem slysið olli villtum sjávardýrum.Vísir/Lego lost at seaVísir/Lego lost at sea
Mest lesið Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Fleiri fréttir Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Sjá meira