Utanríkisráðherrar ESB ræða hertar aðgerðir gagnvart Rússum Heimir Már Pétursson skrifar 22. júlí 2014 19:30
Líkamsleifar fólks sem fórst með flugvél Malaysian í Úkraínu á fimmtudag eru á leið til Hollands þar sem reynt verður að bera kennsl á þær. Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins komu saman til fundar í dag til að ræða hertar refsiaðgerðir gagnvart Rússum vegna afskipta þeirra af innanríkismálum Úkraínu. Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra hefur verið í hópi fulltrúa Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) sem var með fyrstu erlendu aðilunum sem komu að brakinu í Donetsk héraði. Aðskilnaðarsinnar komu líkamsleifum þeirra sem fórust fyrir í kældum lestarvögnum. Stefán Haukur ásamt öðrum fulltrúum ÖSE fóru með lestinni í nótt út af áhrifasvæði aðskilnaðarsinna ásamt tólf fulltrúum frá Malasíu. En lestin kom til borgarinnar Kharkiv upp úr klukkan níu í morgun. „Nú eru tæknimenn frá Hollandi og fleiri löndum sem munu fara í það að ganga betur frá og síðan verður flutningur til Hollands þar sem kennslaferlið fer af stað. Þar sem farið verður í það að vinna frekari rannsókn á að bera kennsl á lík og líkamsleifar,“ segir Stefán Haukur. Samkomulag er um að Hollendingar, sem misstu 189 manns af þeim 398 sem fórust með flugvélinni, sjái um að bera kennsl á fólkið. Forsætisráðherra Hollands reiknar með að fyrstu líkamsleifarnar komi til Eindhoven um miðjan dag á morgun. „Þegar flugvélin kemur til Eindhoven verða líkamsleifarnar fluttar í Korporal Oud Heuster herstöðina. Um leið og kennsl verða borin á einhvern verða aðstandendur látnir vita og enginn annar,“ segir Rutte. Eiginleg rannsókn opinberra rannsóknaraðila á vettvangi hófst í gær og hefur verið framhaldið í dag, en töluvert hefur verið átt við vettvanginn frá því flugvélin var skotin niður á fimmtudag. Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins komu saman til fundar í Brussel í dag til að ræða hertari refsiaðgerðir gegn Rússum til að þrýsta á þá að láta af stuðningi við aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu. Rutte segir að í huga Hollendinga hafi staðan í Úkraínu gerbreyst síðast liðinn fimmtudag. „Hvað okkur varðar kemur allt til greina, efnahagslegar, fjárhagslegar og pólitískar aðgerðir. Í okkar huga er forgangsmál að fá líkamsleifarnar til okkar, að sjálfstæð rannsókn fari fram og réttlætið nái fram að ganga,“ segir Rutte. Þá voru mótmæli fyrir utan sendiráð Rússlands og Úkraínu í Kuala Lumpur í Malasíu í morgun. „Það er ekki nóg að afhenda líkamsleifarnar og flugritana. Við krefjumst þess að réttlætinu verði fullnægt. Við viljum komast að því hverjir hinir raunverulegu sökudólgar eru, glæpamennirnir, samverkamennirnir; sem fullyrt hafa að flugvélin hafi verið skotin niður. Við viljum vita hverjir það voru sem skutu flugvélina niður,“ sagði Khairul Azwanharuni, einn skipuleggjenda mótmælanna í Kuala Lumpur í morgun.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fleiri fréttir Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Sjá meira