Lögleiðing vændis sögð nauðsynleg til að hefta útbreiðslu alnæmis Randver Kári Randversson skrifar 22. júlí 2014 17:39 Alþjóðleg ráðstefna um alnæmi fer nú fram í Melbourne í Ástralíu. Vísir/AFP
Ef takast á að stöðva útbreiðslu alnæmis í heiminum verður að vera löglegt að vinna fyrir sér með vændi. Ritstjórar eins þekktasta læknatímarits heims, The Lancet, halda þessu fram í nýrri greinaröð. Þetta kemur fram á vef Independent. Ef draga á úr líkum á HIV-smiti og öðrum kynsjúkdómum meðal karla og kvenna sem vinna við vændi er þetta meðal þess sem nauðsynlegt er að gera svo vernda megi heilsu þess hóps. Sérfræðingar telja að hægt verði að binda endi á útbreiðslu HIV-veirunnar og alnæmis fyrir árið 2030, en hafa áhyggjur af að útbreiðslan muni þó haldið áfram meðal afmarkaðra hópa þeirra sem eru í mikilli áhættu á að smitast. Í nýrri greinaröð sem tímaritið birtir á sama tíma og alþjóðlega alnæmisráðstefnan fer fram í Melbourne í Ástralíu, er sýnt fram á að fólk sem stundar vændi standi frammi fyrir umtalsverðum hindrunum varðandi aðgengi að heilbrigðisþjónustu og meðferðum við sjúkdómnum vegna þeirrar skammar og mismununar sem fylgi því að vændi sé ólöglegt. Bent er á að þeir sem starfa í kynlífsiðnaðinum séu í mestri áhættu á að smitast af HIV og öðrum kynsjúkdómum. Þá kemur fram að í sumum ríkjum Afríku sunnan Sahara séu meira en 50% þeirra sem starfi í kynlífsiðnaði HIV-smitaðir og eru ráðamenn heims hvattir til að gera vændi refsilaust í þeim tilgangi að aflétta öllum slíkum hindrunum að heilbrigðisþjónustu. Greinarhöfundar telja að draga megi lærdóm af reynslu Hollendinga, en í Amsterdam er löglegt að vinna fyrir sér með vændi. Það geri lögreglu kleift að einbeita sér að því að draga úr ofbeldi, vernda þá vinni fyrir sér með vændi og styðja við fyrirbyggjandi aðgerðir gegn HIV-smiti.
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Sjá meira