Glæpamaður náðist eftir að skrifa á Facebook-síðu lögreglu Kjartan Atli Kjartansson skrifar 27. júlí 2014 16:32 Lögreglan birti þessa mynd á Facebookösíðu sinni. Mynd/Lögreglan í Anne Arundel „
Þið náið mér aldrei,“ skrifaði hinn 28 ára gamli Roger Ray Ireland við mynd sem lögreglan í Anne Arundel-sýslu í Maryland í Bandaríkjunum birti á Facebook-síðu sinni. Hann reyndist ekki sannspár, því lögreglan náði honum daginn eftir. Hann var eftirlýstur fyrir að brjóta skilorð. Alla miðvikudaga birtir lögreglan myndir af eftirlýstum glæpamönnum og hvetur fólk til þess að gera fjölskyldumeðlimum mannanna viðvart í gegnum Facebook (eða „tagga“ eins og það er kallað). Þessi vikulega uppákoma lögreglunnar er kölluð #WantedWednesdays. Í þessari viku birti lögreglan mynd af Ireland og var hann ósáttur við að verið væri að blanda fjölskyldunni sinni inn í hans mál. Hann hvatti lögregluna til að láta fjölskyldumeðlimi í friði. Og endaði með því að lýsa því yfir að hann myndi aldrei nást. „Bíddu, er þetta ekki hann?“ spurði einn í athugasemd rétt eftir að Ireland tjáði sig á Facebook-síðu lögreglunnar. Lögreglunni tókst að finna Ireland með því að komast í samband við fólk sem hafði verið með honum að undanförnu. Hann mun fara fyrir rétt á næstunni.
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Sjá meira