Færeyingar halda upp á Ólafsvökudaginn Atli Ísleifsson skrifar 29. júlí 2014 10:12 Lögregla í Þórshöfn segir nóttina hafa verið líflega þar sem sjúkrabíll hafi verið sendur átta ferðir í bæinn eftir fólki. Einn maður var handtekinn vegna óláta. Vísir/Getty
Færeyingar fagna Ólafsvökudeginum í dag þar sem Kaj Leo Johannesen, lögmaður Færeyja, mun setja nýtt lögþingsár. Mikil hátíðarhöld fylgja Ólafsvökunni og segir lögregla í Þórshöfn að nóttin hafi verið lífleg þar sem sjúkrabíll hafi verið sendur átta ferðir í bæinn eftir fólki. Einn maður var handtekinn vegna óláta og sendur til Klaksvíkur til að sofa áfengisvímuna af sér. Lögmaðurinn mun flytja stefnuræðu sína þar sem hann lítur yfir síðasta ár og fer yfir helstu löggjafarbreytingar sem farið verður í á næsta lögþingsári. Á vef Kringvarps segir að Johannesen muni í ræðu sinni segja það vera bjart framundan í Færeyjum. Fyrir stefnuræðu lögmanns verður gengið í Hafnarkirkju með lögmann, forseta þings og biskup fremsta í flokki. Theodor Eli Dam Olsen prestur messar og að athöfn lokinni verður aftur haldið í þinghúsið þar sem kór flytur lög og lögþingið verður sett. Ólafsvaka er þjóðhátíð Færeyinga og fer fram 28. og 29. júlí, en 29. júlí er sjálfur Ólafsvökudagurinn. Færeyingar minnast þar Ólafs Haraldssonar konungs sem barðist fyrir kristnitöku í Noregi og féll í orrustu árið 1030. Ólafur var tekinn í dýrlingatölu ári síðar og hlaut því nafnið Ólafur helgi.
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Sjá meira