Netanyahu segir vopnahlé ekki vera á dagskrá Atli Ísleifsson skrifar 10. júlí 2014 10:48 76 Palestínumenn hafa fallið í árásum Ísraelshers síðustu daga. Vísir/AFP
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sagði vopnahlé ekki vera á dagskrá er hann fundaði með þingmönnum utanríkis-og varnarmálanefndar ísraelska þingsins í morgun. Linnulausar loftárásir Ísraelshers á Gasaströndina hafa staðið yfir síðustu daga.Palestínsk yfirvöld segja tuttugu manns hafa látist í árásum næturinnar, þar af flestir í árás á hús og kaffihús í Khan Younis á suðurhluta Gasa. Tala látinna er nú komin upp í 76 frá því að yfirstandandi sókn Ísraelshers á Gasa hófst. Herskáir Palestínumenn héldu eldflaugaárásum sínum á Ísrael áfram í morgun þar sem viðvörunarsírenur hafa hljómað í bæjum sunnarlega í landinu.Öryggisráðið kemur samanÁ vef ísraelska miðilsins Haaretz segir að Netanyahu hafi rætt við erlenda ráðamenn í gær og hafi þeir allir sýnt Ísraelsmönnum skilning og stuðning að sögn forsætisráðherrans. Ræddi hann meðal annars við Ban Ki-moon, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, Angelu Merkel Þýskalandskanslara og John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Á hann að hafa sagt þeim að ekkert ríki heims geti setið undir stöðugum eldflaugaárásum og að Hamas-liðar væru sekir um tvöfalda stríðsglæpi, bæði með því að ráðast á ísraelska borgara og að nota óbreytta borgara Gasastrandarinnar sem mannlega skildi. Kenndi hann Hamas um fall óbreyttra borgara á Gasa. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur boðað fund þar sem ræða á ástandið í Ísrael og á palestínsku heimastjórnarsvæðunum.Forsætisráðherrann átti símafundi með erlendum ráðamönnum í gærkvöldi.Vísir/AFP
Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Fleiri fréttir Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Sjá meira