Lýsa yfir áhyggjum vegna hugsanlegs mengunarslyss Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 15. júlí 2014 11:26 vísir/afp
Umhverfisverndarsamtök í Ítalíu hafa lýst yfir áhyggjum vegna hugsanlegs megnunarslyss sem ítalska skemmtiferðarskipið Costa Concordia gæti valdið. Verið er að flytja skipið um þrjú hundruð kílómetra leið að Genúa, þar sem það verður rifið niður í brotajárn. Eigendur skipsins segja þó að ekki séu miklar líkur á að skipið valdi nokkru mengunarslysi. Flutningur skipsins kemur til með að taka fjóra daga. Tíu skip verða með í för til að fylgjast með gangi mála, hreinsa upp eiturefni og annað sem gæti fallið til en talið er að rúmlega 260 lítrar af menguðu vatni séu í skipinu núna. Skemmtiferðaskipinu Costa Concordia var komið á flot á ný eftir að hafa legið á strandstað í tvö og hálft ár. Þessar framkvæmdir eru með þeim umfangsmestu og flóknustu sinnar tegundar og fylgdi þeim mikil spenna. Lofti var dælt í þrjátíu stór hylki sem fest voru á skipsskrokkinn. Sjó var dælt út og skipinu lyft um tólf metra af sjávarbotni. Skipið er gríðar stórt - um 114 þúsund tonn og 290 metrar að lengd. Náttúran á strandstað er afar viðkvæm og lífríki fjölbreytt og kom því aldrei til greina að sprengja eða rífa skipið á strandstað, svæðið er friðlýst og hefði það valdið of miklu tjóni. Kostnaður við verkefnið er þegar kominn upp í milljarð evra – en heildarkostnaður er talinn verða um 1,5 milljarður evra. Rúmlega fjögur þúsund og tvö hundruð manns, af sextíu þjóðernum, voru um borð í skipinu þegar það steytti á skeri undan ströndum eyjunnar Giglio þann þrettánda janúar 2012. Alls létust þrjátíu og tveir. Skipstjórinn og fimm aðrir úr áhöfninni voru sakfelldir fyrir manndráp vegna málsins.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Fleiri fréttir Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Sjá meira