Nýr forseti ESB vill þúsundir milljarða í styrkingu innviða Heimir Már Pétursson skrifar 17. júlí 2014 19:49
Verðandi forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins heitir 48 þúsund milljörðum króna til uppbyggingar orku-, samgöngu- og breiðbandskerfa Evrópu á næstu þremur árum. Þá vill hann að Evrópusambandið setji reglur um lágmarkslaun innan sambandsins. Fulltrúar hægri flokka bauluðu á forsetann þegar hann ávarpaði evrópuþingið. Kjör Jean-Claude Juncker fyrrverandi forsætisráðherra Luxemburgar í embætti forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins er aðeins upphafið á endurnýjun allrar forystu þess. Leiðtogunum tókst hins vegar ekki á láta leiðtogakapalinn ganga upp í gær. Helle Thoring-Schmit forsætisráðherra Danmerkur er talin koma sterklega til greina sem forseti leiðtogaráðsins, en hún gæti reynst Íslendingum haukur í horni í samskiptum við sambandið í framtíðinni. Juncker var kjörinn með 422 atkvæðum á evrópuþinginu en 250 greiddu atkvæði á móti kjöri hans og 47 sátu hjá. Hægri flokkar lögðust gegn kjöri hans og var David Cameron forsætisráðherra Bretlands talinn hafa beðið nokkurn ósigur með kjöri hans. Junker heilsaði Nigel Farage leiðtoga breska Sjálfstæðisflokksins kumpánlega á evrópuþinginu, en líklegt er að Farge hafi á þeirri stundu hugsað Junker þegjandi þörfina. Og þegar Juncker ávarpaði evrópuþingið á þriðjudag bauluðu fulltrúar hægri flokka ítrekað á hann. Marine Le Pen leiðtogi frönsku þjóðfylkingarinnar sagði í ræðu að þjóðræknir kjósendur í Evrópu biðu þess allir að framkvæmdastjórn Junckers og embættiskerfið í Brussel hyrfi allt í dýflissu sögunnar. En Juncker er með risvaxin fyrirheit og vill m.a. að Evrópusambandið setji regur um lágmarkslaun og framfærslu og fari í meiriháttar fjárfestingar á innviðum. Hann biðalði til þingsins um að styðja hann í þeim áætlunum að setja 300 milljarða evra á næstu þremur árum til að styrkja orku -, samgöngu- og breiðbandskerfi sambandsríkjanna
Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Innlent Fleiri fréttir Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Sjá meira